Miðvikudagur, 23. nóvember 2005
Ég er í sjokki. Hitti Wayne Jarvis í hádeginu. Hann er airhead, smellir fingrum í sífellu og hrópar "yeah!", með tilheyrandi mjaðmahnykkjum.
Fæ hroll.
Búin að dömpa Wayne Jarvis leikaranum, en ætla að dást að Wayne Jarvis lögfræðingnum úr fjarlægð en það er ekki það eina sem ég ætla að gera.
Ég hef ákveðið að fara í sambúð með lifur. Við munum hafa fjarbúðarformið á þessu, þ.e. búum á sitthvorum staðnum og hittumst aldrei.
Lifur veit ekki af þessu - og þarf í rauninni ekkert að vita af þessu þannig lagað. Alveg nóg að ég viti að ég sé í fjarbúð og eigi þar með kærasta og nú get ég líka sagt það þegar menn bjóða mér út: "Nei, veistu.. ég á kærasta og hann yrði ferlega reiður ef ég færi með þér út. Hann keppir í Vestfjarðavíkingnum". (þetta er náttúrlega lygi, lifur myndi AAAAAAAALDREI keppa í svona mongo keppni)
Mér finnst þetta brill fyrirkomulag.
Ég er snillingur.