www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Simply..
Þriðjudagur, 08. nóvember 2005

Í gær lá ég uppí rúmi með iShuffle að hlusta á tónlist og þegar lagið For your babies með Simply Red byrjaði.. fór ég að syngja lágt með.. og um leið hugsaði ég: "þetta gæti ég ekki gert í sambúð - nema ég yrði álitin geðveik" svo brosti ég og það hríslaðist um mig sæluhrollur og ég kúrði mig undir sæng og söng allt lagið lágt í myrkrinu í rúminu mínu.

(ég get reyndar sungið)

Ekki eykur það líkur á að ég fari í sambúð með því að skrifa um þetta.

En til þess er leikurinn kannski gerður?

You’ve got that look again
The one I hoped I had when I was a lad
Your face is just beaming
Your smile got me boasting, my pulse roller-coastering
Anyway the four winds that blow
They’re gonna send me sailing home to you
Or I’ll fly with the force of a rainbow
The dream of gold will be waiting in your eyes
You know I’d do most anything you want
Hey I..
I try to give you everything you need
I can see that it gets to you

I don’t believe in may things
But in you
I do

Her faith is amazing
The pain that she goes through contained in the hope for you
Your whole world has changed
The years spent before seem more cloudy than blue
In many ways your baby’s controlling
When you haven’t laid down for days
For the poor no time to be thinking
They’re too busy finding ways
And I.. you know I’d do most anything you want
Hey I
I try to give you everything you need
I’ll see that it gets to you
I don’t believe in many things
But in you
I do

You know I’d do most anything you want
Everyday i, I try to give you everything you need
We’ll always be there for you
I don’t believe in many things
But in you
I do

Mér líður nefnilega nákvæmlega svona.


| anna | 10:03 |
comments

Fallegt að þú skulir vera svona melankólísk.
Þegar þú ert búin að syrgja diskinn og synda í móðurástinni í einhvern tíma langar þig kannski til að hressa þig við og þá skal ég senda þér eins og einn góðan smell með Lúdó Sextett og Stefáni.
Þú verður ekki söm!

Nr. 1 | posted by: lifur | 8.11.2005 | 11:34:20 | [+] |

Þú þreytist ekki á að plögga þá..

hehe

Já og lifur. Mér finnst Hummer glataðir bílar eða jeppar eða skriðdrekar eða hvað svo sem þessir ágætu bílar eru annars kallaðir og ég ætla ekki að gefa þér svoleiðis og ekki gef ég þér eitthvað rugl farartæki, en ef ég hitti á gullæð einn daginn og verð aflögufær um nokkrar milljónir.. mun gefa þér bíl - að eigin vali.

Mínu eigin vali að sjálfsögðu. Nákvæmlega þennan bíl hér.

Take it or leave it.

Nr. 2 | posted by: anna | 8.11.2005 | 11:41:24 | [+] |

Ég var búin að skrifa blogg fyrir nokkru síðan um hvað mér finnst ríkt fólk á Íslandi hafa glataðan smekk á bílum. Birti hana ekki vegna þess að ég nennti ekki að klára að finna myndir - og svona blogg verður að hafa myndir.

Þarf að bursta rykið af því dæmi og verð svo eiginlega að finna forustusauðinn hjá ríkafólkinu sem allir herma eftir til að breyta þessari skelfingar þróun og slá hann aðeins til. Reyna að hrista eitthvað vit í hann.

Það er nefnilega ekki sjálfgefið að fólk hafi smekk þótt það sé ríkt eins og Jón Ásgeir sannaði með því að kaupa ljótasta Bentley sem framleiddur hefur verið - ever. Enda búið að reka hönnuðinn með skít og skömm. Kom í ljós að hann var alveg kókaður upp í rjáfur og vissi ekki hvort hann var að koma eða fara. Anyway.

Ríkt fólk eru hjarðdýr í eðli sínu, skíthrætt um að missa coolið og gera "öðruvísi" en hinir í hjörðinni, svo það finnur sér forystusauð og gerir allt eins og hann. Kaupir sömu fötin, bílana, golfsettið, bladíbla.

Getur einhver sagt mér hver er í þessu hlutverki eða sent mér póstin hjá honum? Þetta gengur ekki svona mikið lengur. Af hverju í andskotanum fær fólk sér ekki hæfan stílista ef það á peninga hvort sem er!

Já. Bloggið var skrifað því mér blöskraði að keyra frá vesturbæ útí Kringlu (til að kaupa háa nylonsokka fyrir sokkabelti - í sokkabúðinni) og sjá bara ljóta sportbíla og klossaða.. kloss farartæki á leiðinni.

Þetta gerir það að vera fátækur svo miklu auðveldara en það væri annars, ef maður gæti virkilega öfundað fólk sem á peninga. Hver getur öfundað fólk sem kaupir sér t.d. Porsche jeppa?

Ekki ég. Myndi ekki láta sjá mig í slíkum óhugnaði.

MÚHOHOHOHOHOHO

Nr. 3 | posted by: anna | 8.11.2005 | 11:49:26 | [+] |

FLOTT!
Brjálaða anna kýlir leiðu önnu í þindina!
Það sem þú greinilega vissir ekki mín kæra er að Hummerum má henda út úr fallhlíf!!!
Er hægt að biðja um meira?

Nr. 4 | posted by: lifur | 8.11.2005 | 11:56:39 | [+] |

Ef ég vil fljúga, þá kaupi ég mér flugvél, þyrlu eða geimskip. Ekki bíl.

Bílar eiga að vera með öll fjögur á jörðinni.

Nema þeir séu mótórhjól, þá duga tvö. Sem er líka betra cool

Eina ástæðan til þess að láta bíl fljúga væri til að sjá hversu stóran gíg hann myndi skilja eftir sig. Það er sennilega eina tilfellið þar sem Hummer væri impónerandi.

Og já... það á að senda allt þetta jeppalið til Grænlands.

One-way toungue

Nr. 5 | posted by: Þór | 8.11.2005 | 12:04:07 | [+] |

lifur. Elsku forboðna dúllulifurin mín. Ekki segja mér að þú eigir Porsche jeppa.

Please.

Nr. 6 | posted by: anna | 8.11.2005 | 13:03:57 | [+] |

og já. Þetta er rétt hjá þér. Nú hef ég tekið út sorgina vegna disksins. Endaði nú eiginlega á að eyða bróðurpartinum af helginni í að vorkenna mér yfir því að ég hafði engan til að hugga mig, sem er önnur saga, og svo þótti mér vænt um börnin mín í gærkvöldi og fyrir hádegi í dag en hef ég fengið nóg af þessari vitleysu.

Auk þess getur leiða anna aldrei náð andanum í alveg tvo daga eftir að ég hef kýlt hana í þindina.

MÚOHOHOHOHOHOHOHOHO

Nr. 7 | posted by: anna | 8.11.2005 | 13:06:59 | [+] |

Frábært...
Annan með geðveikisfroðuna í munnvikinu og taugakippina í andlitinu sem dúndrar út farartækjapistlunum er náttúrulega stúlkan við elskum öll!
Og það er einmitt sú Anna sem fær bara ekkert að koma með þegar ég læt varpa mér úr Hummer í fallhlíf!
Þú getur bara rúntað á 25 km hraða um Rjúpurima með öll hjólin á jörðinni!
Double or nothing baby?

Nr. 8 | posted by: lifur | 8.11.2005 | 13:13:36 | [+] |

Jújú... ég á Porche jeppa, 2006 módel... húðlitaðan... og nú er ég sár!

Nr. 9 | posted by: lifur | 8.11.2005 | 13:19:37 | [+] |

æ... þú átt þannig. Oh well. Þú gast ekki verið fullkominn.

(ég rata ekkert í breiðholtinu)

Nr. 10 | posted by: anna | 8.11.2005 | 13:20:15 | [+] |

æ.. og húðlitaðan.. ouch.

Nr. 11 | posted by: anna | 8.11.2005 | 13:21:05 | [+] |

Ég hef hugsað málið og komist að því að til að særa ekki tilfinningar lifur mun ég ljúga því að mér finnist húðlitir Porche jeppar flottir, en bara árgerð 2006.

Getum við þá verið vinir aftur? hey! varstu þá að ljúga að mér með að þú gætir ekki keyrt mig í hördígördí??

Nú er ég sár!

Nr. 12 | posted by: anna | 8.11.2005 | 13:24:55 | [+] |

Úps! what Það er líklega þessvegna sem mínir menn hafa dömpað mér?!?

Nr. 13 | posted by: Eva | 8.11.2005 | 13:27:49 | [+] |

ok, so you think you can dance?

Hvort myndirðu vilja aka um á:
1. Volvo station, árg. 1981. Dökkfjólublár.
2. Yaris, árg. 2002. Svartur.

Nr. 14 | posted by: lifur | 8.11.2005 | 13:29:38 | [+] |

ÞÚ GETUR EKKERT VERIÐ SÁR!
ÞAÐ ER ÉG SEM ER SÁR!!!

Nr. 15 | posted by: lifur | 8.11.2005 | 13:33:05 | [+] |

Ekki vera sár lifur. Það er ekki eins og mér finnist þú ljótur. Bara bíllinn þinn. Það er allt í lagi. Þér má finnast minn ljótur. Viltu það?

Nr. 16 | posted by: anna | 8.11.2005 | 13:43:34 | [+] |

Til hvers að eiga jeppa hérna í borginni? það sjóar aldrei nóg til að þeir nýtist og ef þú átt nógann pening keyptu þér annann fokking bíl sem tekur ekki 1.5 stæði allstaðar.
Maðurinn sem á né þarf ekki bíl hefur sagt sitt.

Nr. 17 | posted by: Maggi G | 8.11.2005 | 13:45:12 | [+] |

rétt svar enn og aftur!
Bráðum ertu búin að ávinna þér rétt til að taka þátt í hraðaspurningunum!!
Draumabíllinn minn er einmitt téður Volvo.
ok, ok ég gat ekki keyrt þig til Hördí af því ég á ekki nennan helvítis húðlitaða porche... enda væri það eins og að aka um á risastórri rasskinn.
Hvernig bíl átt þú? Ég get örugglega fyrirlitið hann af áfergju!

Nr. 18 | posted by: lifur | 8.11.2005 | 13:54:17 | [+] |

iss, þú getur ekkert fyrirlitið hann af áfergju, ekki þegar þú sérð hvernig bíl ég á. Ég á nefnilega Peugeot 406. Hef oft séð betri myndir af honum en þessi var sú eina sem ég fann í réttum lit.

Hann er æðislegur.

Nr. 19 | posted by: anna | 8.11.2005 | 14:07:51 | [+] |

Respect!

Nr. 20 | posted by: lifur | 8.11.2005 | 14:26:56 | [+] |

Ef að það er að hindra þig að birta überrant um íslenska bílamenningu að nenna ekki að leita að myndum... þá er mér hægt um vik líklegast að redda myndum af þeim bílum sem koma við sögu. Ég hef svo gaman að (því að rakka niður) íslenskri bílamenningu.

Annars er ég stórhneykslaður. Annað hvort er Lifur rappari eða Anna heldur að hann sé rappari. Hvað er málið með að gefa honum þaklausan Bentley annars? En ég er sammála að Bentley Continental GT er bara ekki spennandi en gamli Continental (sem verður að Azure þegar þakið er klippt af) var alvöru herramannshraðlest.

Nr. 21 | posted by: Kalli | 8.11.2005 | 16:34:42 | [+] |

Já hvernig væri að taka saman höndum og skrifa langa og ítarlega grein þar sem við dissum forystusauði núvó rísé liðsins og hvetjum þá til að taka hlutverk sitt ekki svona léttvægilega!

Þetta er, eftir allt saman, grafalvarlegt mál. Þarf einhver að kenna Íslendingum að hafa class. Sumir hlutir hafa einfaldlega ekki class, þó þér séu dýrir.

Nr. 22 | posted by: anna | 8.11.2005 | 16:49:54 | [+] |

Ég hef einmitt oft sagt að peningum sé sóað á þá ríku. Þeim væri hins vegar ekki sóað á mig enda gæti ég fengið James Bond til að skilja hugtakið connoiseur. Strippbúllulimmúsínur og Grand Lúserar eru sko ekki minn tebolli, ó nei. Það er líka löngu kominn tími á að ég kaupi mér ný jakkaföt... Pierre Cardin gallinn nálgast óðfluga aldarfjórðungsafmælið. *andvarp*

Varstu ekki annars búin að skrifa? Ég ætti að geta misnotað aðeins aðstöðu mína með því að ná í myndir sem eru annað hvort ekki varðar höfundarrétti eða strangt til tekið ættu bara að birtast í fréttamiðlum.

Nr. 23 | posted by: Kalli | 8.11.2005 | 16:58:46 | [+] |

Ég veit. Það hafa þetta ekki allir í sér, ólíkt mér.

Fæddist bara inní ranga fjölskyldu. - Augljóslega.

Ég var einmitt á sýningu um daginn, föt af rússnenskum keisurum, málverk og svona. Mér fannst þetta allt alveg rosalega kunnuglegt og upplifði repeated dejavu þarna inni.

I wonder why..

Nr. 24 | posted by: anna | 8.11.2005 | 17:55:33 | [+] |

The probability of being born into a rich family was very low in 1971 in Iceland.

It is much more likely today which is unfortunate for you as you are already born. No second chances there. You have the option of working your way up the ladder or take the short cut and marry yourself into a rich family.

You see, you are surrounded with possitive options.

Nr. 25 | posted by: igor | 8.11.2005 | 18:13:44 | [+] |

I always knew my birth would turn out to be unfortunate in some way.

How can you say I'm surrounded when you are referring to merely two things. Are you suggesting I'm to thin?

hehehe

Nr. 26 | posted by: anna | 8.11.2005 | 18:18:05 | [+] |

Ég var einmitt að skoða bækling frá ríkum konum með fátækra-fetish.

Kröfurnar eru að þú getir litið gáfulega út á heldri-manna-samkomum, reykt pípu og drukkið brandí án þess að æla eða drepast ofaní chesterfíldinn, þekkt í sundur mahogany og furu á lyktinni - sem er nú eiginlega algjört lágmark, verð ég að segja. Þú mátt ekki pissa mikið útfyrir. Það þykir svo "middle class". Nóta bene.. þetta verður þú að geta án þess að setjast á klósettið! Mikilvægt atriði og verður að hafa í huga at all times ef þú ætlar að verða trophy husband. Þessi menn eyða mörgum árum í að halda fókus á meðan þeir eru að pissa og æfa miðið, en sumir eru heppnir og fá það þúsundfalt til baka.

Það voru heilar fimm blaðsíður um hlandmál í þessum sex síðna bæklingi, so I cannost stress the importance of this issue.

Ég held samt að þetta sé ekki fyrir þig. Þessar ríku konur sem giftast fátækum ómögum gera það oftast til að pissa pabba off og tíma svo ekki að borga þá út við skilnað heldur finna sér bara friðla og ástmenn útum allt og þú endar á að eyða öllum vikupeningnum þínum á strippbúllum og horfa á sjóvarpið þangað til þú færð næsta skammt.

Það er svo spurning hvort þú flokkar það sem heppni eða óheppni.. en sumar ríkar konur vilja síðhærða dópista sem öskra fyrir framan alveg fullt af fólki og ferðast um í rútu. Þú gætir líka prófað það.

Nr. 27 | posted by: anna | 8.11.2005 | 18:47:23 | [+] |

En hvað um að ganga í Vísundrakirkjuna? Væri það ekki líklegt til árangurs? Jafnvel bara stofna Vísundrakirkju á Íslandi. Maður ætti að geta valið úr dysfunctional auðkellum þá.

Nr. 28 | posted by: Kalli | 8.11.2005 | 19:14:57 | [+] |

Af hverju dysfunctional? Finnst þér það kostur? doubt

Nr. 29 | posted by: anna | 8.11.2005 | 20:00:39 | [+] |

Þetta er meira svona merki um örvæntingu. Dysfunctional í lagi ef hún á bara nógu djöfull mikið af pening sko.

Nr. 30 | posted by: Kalli | 8.11.2005 | 22:13:51 | [+] |

No, not at all too thin but at the same time I am not suggesting you are fat. I think you are just perfect with your six arms which you could easily use to grab the opportunities that are swimming around you.

Btw. I met Cameron Diaz last sunday. She was attending the opening of her new movie, *In her shoes*, I think the name is.

I managed to get stunning photograps through the screaming public at Leicester square by having my son sit on my daughters shoulders and myself screaming *Cammy*.

Well, don't laugh, it worked.

Nr. 31 | posted by: igor | 9.11.2005 | 0:39:50 | [+] |

smile happy wink colgate laughing toungue shy sour really sad sad silent doubt embarassed angel hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave chococat clown nerd weepy melodramatic

Nr. 32 | posted by: sigga | 20.01.2006 | 9:49:59 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web