Miðvikudagur, 30. nóvember 2005
Af gefnu tilefni vil ég taka fram að auðvitað er ég með hjarta úr ryðfríu stáli. Annað hefði verið tómt ábyrgðarleysi.
Þetta hjarta brotnaði fyrir stuttu síðan og ég leið vítiskvalir.
Lengi.
Þegar það var búið og ég búin að tjasla því að mestu leyti saman, ákvað ég að setja það í frost en ekki fyrr en ég var búin að láta smíða utanum það mikið virki, einmitt úr ryðfríu stáli einfaldlega vegna þess að annars hefði það ryðgað til andskotans.
Og við vitum öll að ryð veikir burðarvirkið.
Það.. vil ég ekki. Strax.