Anna, þú gætir haft humar sem gæludýr. Fer lítið fyrir þeim og þeir geta vel klórað á manni bakið. Og þig klæjar ekki í bakið geturðu alltaf fírað upp í grillinu...
Mér finnst leiðinlegt hvað þú sýnir þjáningum mínum lítinn skilning Lifur, og hvað þú gefur fullkomið áhugaleysi þitt kinnroðalaust í ljós þegar kemur að því að bæta líðan mína og lífsgæði almennt.
Ég hélt að þú ætlaðir að vera góður við mig.
Nr. 5 | posted by: anna |
25.11.2005 | 13:21:14 | [+] |
þú dramatíska fórnarlamb!
Farðu til einhvers af vinnufélögum þínum, klæddu þig hægt úr að ofan á meðan þú horfir stíft í augun á viðkomandi, snúðu þér svo við og segðu: "do your thing".
Ég veit nú ekki einu sinni hvar brisið er svo ég hef ekki hugmynd um hvað ég ætti að gera í því!
Nr. 12 | posted by: anna |
25.11.2005 | 16:08:36 | [+] |
passaðu þig að kafna ekki úr samúð!
annars er ég í kasti yfir því að "lifrarsjúkdómum" hafi verið kennt um dauða George Best! Ég er blóraböggull í darraðadansi pressunnar rétt eins og Hannes Hólmstein!
Ruglið í þessum fjölmiðlum alltaf. Þetta er alheims samsæri, ég segi það satt! Það var nákvæmlega ekki nokkur skapaður hlutur að lifrinni í þessum manni, hún var glæný!
Ég finn svo til með þér. Verkjar að innan! Langar að leigja þyrlu og bjarga þér eins og Súperman gerði. Eða bjargaði hann þyrlunni? Við gætum þurft að stóla soldið á hann. Súperman sko. Hefurðu eitthvað heyrt í honum nýlega? Hann hefur ekkert komið í mat.
Hey! Hann gæti klórað þér í brisinu!
Nr. 14 | posted by: anna |
25.11.2005 | 16:35:44 | [+] |
Ég hef ekki séð hann... alls ekki séð hann!
geturðu sagt mér hvar næsti símaklefi er?
Góða helgi ljúfan.