Þriðjudagur, 29. nóvember 2005
Í nótt vaknaði ég klukkan fimm í svitabaði. Í draumi hafði ég sofið yfir klippinguna sem ég átti pantaðann tíma í og klippikonan neitaði að klippa mig seinna um daginn. Ég var gráti næst.
Ég held að það sé komið á sálina á mér hvað ég hef þurft að fresta mörgum klippitímum á síðasta hálfa ári.
Það mun ekkert koma í veg fyrir að ég fari í dag. Ekkert. EKKERT!
Ég er með krosslagða fingur og vona að ég verði ekki klippt eins og dísa páfagaukur - eins og tískan virðist vera í dag.
Ég er bara ekki svona smart týpa.