www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Lélegt
Fimmtudagur, 17. nóvember 2005

Ég gat ekki loggaið mig inn á MT 3.2 kerfið í dag. Eftir að ég ráðfærði mig við tæknimann sendi hann mér líklega lausn sem ég sendi áfram á þá sem hýsa síðuna sem ég var að reyna að vinna við.

Nei. Það var ekkert að hjá þeim (svöruðu mér reyndar aldrei)

Það lítur út fyrir að ég sé ekki eini MT 3.2 notandinn sem gat ekki loggað sig inn í dag. Ástæðan gæti legið í því að þegar fólk loggar sig inn, nær kerfið sjálfkrafa í nýjustu fréttirnar frá sixapart.com og kerfið gerir það áður en það hleypir þér inn. En þar sem sixapart.com lá niðri megnið af deginum.. gat mt ekki náð í sambandi við síðuna... og notandinn gat ekki loggað sig inn!

Ef þetta er tilfellið, VÁ hvað það er klaufalegt hjá þeim.

Ég hef verið að kíkja á wordpress. Hefur einhver reynslu af þessu?


| anna | 19:13 |
comments

Mæli með wp.Hef reyndar enga reynslu af Mt. Wp er afar meðfærilegt, búið að þýða viðmótið og þó nokkur sniðmát og þú getur fært allt yfir.
Sjá: http://carthik.net/wpdocs/importmt.html

Nr. 1 | posted by: Gísli | 17.11.2005 | 20:18:33 | [+] |

Vefurinn okkar Dóna.is notar MT en heimasíðan mín WordPress. Ég er enginn PowerUser í þessum umhverfum svo ég ætla ekki að gera upp á milli þess að nota þau. Ef þú myndir þrýsta myndi ég hallast að WordPress. Ég fíla líka hvað er auðvelt að búa til content-síður með WP en hef ekki reynt þannig á MT. Uppsetning á WordPress er OF auðveld. Það á ekki að gera hálfvitum svona auðvelt að fara á netið!

Nr. 2 | posted by: Kalli | 17.11.2005 | 21:11:17 | [+] |

Það er mikilvægt að kerfið sé einfalt hvað uploads varðar t.d. á myndum. Er user interface-ið þægilegt í wp? Já og er ekki hægt að setja upp linka á nýjustu færslur og komment eins og hér?

Nr. 3 | posted by: anna | 17.11.2005 | 22:02:25 | [+] |

Góður punktur með myndirnar. Það fyrirkomulag er mjög nett í MT en ég hugsaði ekki einu sinni út í að það vantaði í WP því þar hef ég bara sett inn eina mynd. En... ég var hvort eð er alltaf að klippa myndir til áður en ég setti þær inn í MT og það munar því litlu fyrir mig að uploada þeim með FTP client og smella tengli inn.

Nr. 4 | posted by: Kalli | 17.11.2005 | 22:09:54 | [+] |

k, ef það er ekkert svona user friendly interface með myndir í wp þá get ég ekki notað það í þetta. *snökt* kleenex

Á maður að skoða mambó?

Nr. 5 | posted by: anna | 17.11.2005 | 22:12:18 | [+] |

Mega ekki allir vera down... svona einhverntímann?

Nr. 6 | posted by: Langi Sleði | 17.11.2005 | 22:54:32 | [+] |

Hvað um http://textpattern.com/

Vefapinn „minn“ er víst að fikta í þessu núna. Mér sýndist WordPress bara vera svo aðgengilegt þegar ég skoðaði þetta dót allt að ég smellti mér bara á það.

Nr. 7 | posted by: Kalli | 17.11.2005 | 22:56:28 | [+] |

Já, því að:

„Browser-based file and image upload & organization“

Nr. 8 | posted by: Kalli | 17.11.2005 | 22:57:53 | [+] |

Jú það mega allir vera down einhvertímann en mér finnst eitthvað orðið morkið við mt.

Um leið og ég datt inná síðuna hjá textpattern leist mér vel á það, sem segir mér að það hljóti að vera crap.

Viltu láta mig vita þegar vefapinn þinn er búinn að fikta í þessu?

Nr. 9 | posted by: anna | 17.11.2005 | 23:13:39 | [+] |

Já ég skil. Hann er greinilega með sama "to do" lista og ég.

Nr. 10 | posted by: anna | 18.11.2005 | 8:45:27 | [+] |

Frábært kerfi, sem ég nota og hef sett upp fyrir aðra svo sem http://sida.akureyri.is og http://www.atgangur.net/snorri Mæli með því

Nr. 11 | posted by: Hilda Torfadóttir | 2.12.2005 | 0:30:26 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web