www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
*let it snow, let it snow, let it snow*
Fimmtudagur, 03. nóvember 2005

Igor spyr mig af hverju ég er byrjuð að drita niður snjókornum hér og þar á síðunni. Það er einföld skýring á þessu - eins og alltaf.

Í vinnunni nota ég textapóst og í honum er *þetta* eina leiðin til að leggja áherslu á orð eða setningar. Í kerfinu sem ég vinn síðuna mína í er frekar auðvelt að gera letur feitletrað eða skáletrað, sérstaklega ef þú ert að vinna í IE - sem ég geri ekki. Ég nota firefox.

Í Firefox birtast hinsvegar ekki þessir hentugu takkar sem gera notendum kleift að velja orð sem á að feitletra eða skáletra og smella svo á viðeigandi takka. Þar sem ég hef ekki þennan fítus skrifa ég inn <b> og </b> til að feitletra það sem ég vil og <i> og </i> til að gera letur skáletrað.

Mér finnst það ekkert vandamál. Ég nota þessa takka hvort sem er ekki þá sjaldan sem ég blogga í IE.

Enter: hraði

Eftir því sem árunum sem ég eyði í blogg fjölgar, eykst fingrafimi mín á lyklaborði. Þegar ég næ fullum hraða aukast innsláttarvillur, stafsetningarvillur og staðreyndarvillur.

Ég hef orðið vör við að þegar ég er "in a zone" má ég bara ekkert vera að því að setja inn gogga og skástrik til að leggja áherslu á orð mín. Þá nota ég snjókorn.

Ég er mjög fljót að stimpla inn snjókorn og það tekur minni tíma, sjá:

*
vs
<i> * </i>

Blasir við.

Enter: leti

Ef ég nennti gæti ég skilgreint t.d. + og * sem <i> og </i> en...

Enter: óákveðni

..ég get ekki ákveðið hvort ég vil hafa letrið skáletrað eða feitletrað til að leggja áherslu á það sem ég er að segja. Auk þess nenni ég ekki að búa til macro fyrir þetta hvort sem er.

Þegar lesendur sjá snjókorn í stað feitletraðs texta eða skáletraðs.. má gera því skóna að ég hafi verið í stuði, skrifað mjög hratt og ekki nennt að gera þetta á hefðbundinn hátt.

Snjór *er* líka góður.

hehe


| anna | 9:19 |
comments

Í ritgerðarfögum Háskólans er fólki kennt eftirfarandi:

Skáletrun ber að nota þegar ætlunin er að leggja áherslu á stakt orð eða stakan hluta setningar. Feitletrun ber hins vegar að nota þegar leggja á áherslu á eina setningu innan málsgreinar.

Dæmi:

Anna er skemmtilegur bloggari. Anna er betri en ég í blaki. Anna er gríðarlega skemmtileg.

Þarna legg ég áherslu á orðið gríðarlega með skáletrun, og tryggi því að það lesist sem: "gríííííííííðarlegaaaaaahhh!" Þannig að fólk veit að þú ert GRÍÐARLEGA FOKKING SKEMMTILEG. Þú skilur.

Annað dæmi:

Anna er skemmtilegur bloggari. Anna er betri en ég í blaki. Anna er gríðarlega skemmtileg.

Hér legg ég áherslu á það sem mér þykja mikilvægustu upplýsingarnar af þessum þremur; sú staðreynd að þú rústar mér í blaki. Það er mikilvægast í þessari málsgrein, og því legg ég höfuðáherslu á það. Sá sem les málsgreinina er fyrir vikið líklegastur til að muna að þú sért betri en ég í blaki.

Skilurðu? smile

Þannig að þetta er ekkert spurning um að ákveða sig. Þegar þú ætlar að undirstrika eitt orð í texta alveg sérstaklega ber þér skv. löggjöf íslenskra dómstóla að nota skáletrun, ellegar sæta refsingu sem gæti orðið allt að þriggja ára fangelsisvist!

Svo er bara *svo ljótt* að horfa á *helvítis* snjókornin *út um allt* ... það sem skiptir höfuðmáli hérna er hvað lesandanum finnst þægilegast að lesa, ekki hvað þér finnst þægilegast að vélrita.

Kveðja,
Stafsetningarnasistinn. nerd

Nr. 1 | posted by: Kristján | 3.11.2005 | 10:51:59 | [+] |

Ókei, þú leyfir s.s. ekki feitletrun/skáletrun í ummælakerfinu þínu. Sniðugt ...

Nr. 2 | posted by: Kristján Atli | 3.11.2005 | 10:55:47 | [+] |

Já *þessvegna* fór ég að nota snjókornin! bwahaha..

Þegar ég eyddi gamla blogginu út færði ég þetta á milli kerfa (samt að nota framliðið kerfi) og ég var ekki búin að leyfa html í kommentum á þessu nýja og ég hafði aldrei *nennt* að laga það! - notaði bara snjókorn í staðinn!

En ég var *svo* forvitin að sjá þessi dæmi hjá Kristjáni að ég lagaði þetta.

Kannski hætti ég þá alveg að nota snjókorn og fer jafnvel að nota skáletur og feitletur RÉTT á blogginu.

Já tími kraftaverkanna er ekki liðinn!

Nr. 3 | posted by: anna | 3.11.2005 | 10:58:44 | [+] |

Já þá hef ég nú verið að nota þetta ca rétt - stundum allavega.

Það er mikið ánægjuefni. Af þessu tilefni er ég að hugsa um að fá mér súkkulaðibitaköku hérna niðrí mötuneyti og kókómjólk með.

Maður fær kraft úr kókómjólk!

(er ég ekki dugleg?)

Nr. 4 | posted by: anna | 3.11.2005 | 11:02:46 | [+] |

Það er eins og þú hafir aldrei gert annað um ævina. Og þá meina ég *aldrei* ... wave

Nr. 5 | posted by: Kristján Atli | 3.11.2005 | 12:08:41 | [+] |

mér finnast snjókornin alltaf vera enskar gæsalappir og þú vera að vitna í eitthvað wink

Nr. 6 | posted by: hildigunnur | 3.11.2005 | 12:08:41 | [+] |

wave wink

Nr. 7 | posted by: anna | 3.11.2005 | 13:04:59 | [+] |

Jæja Snæfinnur minn,
landi eða campari?

Nr. 8 | posted by: lifur | 3.11.2005 | 13:11:53 | [+] |

Landi. No contest.

Nr. 9 | posted by: anna | 3.11.2005 | 13:13:26 | [+] |

Rétt!
Þú býrð yfir ótrúlegri visku á mörgum, mörgum sviðum...

Nr. 10 | posted by: lifur | 3.11.2005 | 13:25:05 | [+] |

ofkors hon. Hvað hélstu? Að ég væri einhver helvítis campari-lepjandi-lufsa?

NEVEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEER!

MÚHOHOHOHOHOHOHOH

Nr. 11 | posted by: anna | 3.11.2005 | 13:37:08 | [+] |

því hefði ég ekki trúað í eina andstutta sekúntu!

Annars leiðist mér talsvert núna og hef ákveðið að fresta því sem ég á að vera gera, og fara frekar í mikilvæga verkefnið að blanda almennilega landabollu
...hvar ætli mar fái Fanta Lemon í dag?

Nr. 12 | posted by: lifur | 3.11.2005 | 14:04:29 | [+] |

Uppí kók verksmiðju?

Ertu að undirbúa helgina eða er þetta bara með sjónvarpinu í kvöld?

Nr. 13 | posted by: anna | 3.11.2005 | 14:09:06 | [+] |

Lifur, blandaðu búsið í Fresca með ferskri sítrónu...

Í Europay færðu megapressu, svona eins og smækkað entak af bílapressu fyrir ávexti, kreystir sítrónu útí Fresca og áfengi með.... sullar þessu svo í þig eins og norðlendingur, akureyringur jafnvel.

Nr. 14 | posted by: Bitringur | 3.11.2005 | 14:18:50 | [+] |

Töff!
Get ég sett alls konar í pressuna?
Til dæmis gamalt lyklaborð eða nagdýr á stærð við mauraætu?

Nr. 15 | posted by: lifur | 3.11.2005 | 14:24:30 | [+] |

Ég veit ekki með nagdýr, ég hinsvegar fann mér sogdýr á netinu.... og leik við það öllum stundum, tími ekki að setja það í pressuna, beiti það stundum andlegri pressu... en það er annað.

Lifur, ef þú ert að pæla í að fara í það af fítons krafti að ná þér í sogdýr, ekki rugla saman við nagdýr, það er virkilega sárt og þú yrðir minni maður á eftir.

Nr. 16 | posted by: bitringur | 3.11.2005 | 15:06:15 | [+] |

Mmmm... var einhver að tala um Campari? Campari í sóda er í mínum huga *advanced beer substitute*. Þetta drekk ég þegar mig langar ekki í léttvín og ekki er boðið upp á bjór sem sæmir manni af mínu caliberi þar sem ég er... að drekka. Það besta við þetta, fyrir utan frískandi beiskjuna, er hvað fólk hryllir sig við þegar það sér hvað ég er að drekka. Gróflega sömu viðbrögð og dísæta sullið, sem flestir aðrir drekka, draga fram hjá mér.

Ég hefði átt að kaupa Campari í dag til að bjóða upp á í vinnupartíinu mínu.

Nr. 17 | posted by: Kalli | 3.11.2005 | 20:43:31 | [+] |

This reminds me. In university I learned to program in *FORTRAN*.

Nr. 18 | posted by: igor | 8.11.2005 | 13:17:21 | [+] |

Hi wold
free music download programs download free music free limewire free music
Command horrific merchant stand-in.

Nr. 19 | posted by: rayON | 19.09.2006 | 21:02:46 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web