www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Lá í sófa - eða ló?
Þriðjudagur, 22. nóvember 2005

Þegar ég vaknaði í morgun fannst mér hræðilegt loft í herberginu. Staulaðist á fætur til að opna glugga, en fann engan. Kom í ljós að ég var í ryksugupoka, frumburðurinn ætlaði nú aldeilis að hjálpa mömmu sinni í gær og taka til hendinni og ryksugaði mig úr sófanum.

Það á ekki af mér að ganga.


| anna | 9:39 |
comments

Hvernig hefurðu það í dag Lilli Klifurmús?
Hvort erum við að tala um Elvis eða Billy Idol?

Nr. 1 | posted by: lifur | 23.11.2005 | 11:38:56 | [+] |

Ég er að skríða saman.

Í öllum samböndum kemur þetta móment. Þetta make or break móment þar sem allt er lagt undir. Með spurningunni þinni hefur þú framkallað þetta móment prematurely. Þetta á ekki að gerast fyrr en a.m.k. ár inní sambandið þegar báðir aðilar hafa staðsett veiku hliðar hins fullkomlega og geta virkilega kvalið hvort annað í rifrildum. Miðað við valkostina þá held ég að þú munir ekki kunna vel við svarið mitt, sem er eina svarið sem ég get gefið.

Ég álykta þetta vegna þess að yfirleitt er Elvis stillt upp á móti Bítlunum. Sem er mjög ósanngjarnt í raun og veru þar sem annar aðilinn er með svo mikla yfirburði hvað gæði varðar.

Ég segi Billy Idol. Bæði finnst mér Billy Idol töff og skemmtilegur með flotta klippingu og áhugaverðan klæðaburð. Þar fyrir utan er ég ekkert rosalega mikið pikkí þegar kemur að því að velja eitthvað frekar en Elvis. Ég myndi líklega velja Kim Larsen framyfir Elvis líka.

Ég get hlustað á lag og lag með honum en ég hef einu sinni þekkt strák sem var með Elvis á heilanum og ég get það ekki. Það er tortúr. Enda þekki ég þann mann ekki lengur.

Ég bara trúi ekki að þú sért Elvis maður. Ef það er þannig hefurðu átt foreldri sem heilaþvoði þig. Menn eins og þú eru Bítlamenn.

Gefðu mér náðarhöggið.

Nr. 2 | posted by: anna | 23.11.2005 | 11:57:35 | [+] |

hehehe.
Þú ert Idolið mitt!

Nr. 3 | posted by: lifur | 23.11.2005 | 12:52:32 | [+] |

Ég hef rétt fyrir mér, er það ekki? Hvort var það mamma þín eða pabbi sem gerði þér þetta?

Það gætu verið peningar í þessu fyrir þig ef þú færð þér góðan lögfræðing.

MÚHOHOHOHOHOHOHOH

en grínlaust. Elvis eða Bítlana?

Nr. 4 | posted by: anna | 23.11.2005 | 13:36:36 | [+] |

Foreldrar mínir eru fullkomnir að öllu leyti!
Mér líður soldið eins og ég sé á gangi á jarðsprengjusvæði. Það væri náttúrulega ekki svo slæmt ef ein myndi sprynga og ég myndi missa fótinn... og þar með dæmast til að verða deitið hans Paul McCartney (hint, hint).

Nr. 5 | posted by: lifur | 23.11.2005 | 14:14:49 | [+] |

Ég þoli reyndar ekki Paul McCartney. Finnst eitthvað slímugt við þann mann - þó ég tali ekki af reynslu.

Nr. 6 | posted by: anna | 23.11.2005 | 14:19:19 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web