Ég er algjörlega að fara á mis við að það sé föstudagur í dag því mér fannst vera föstudagur í gær.
Líður eins og það sé mánudagur og ég hafi bara verið í blakkout-i alla helgina.
| anna | 14:54 |
comments
Ég sá þig bera að neðan í gær á Austurvelli að reyna að fá Sigurð Kára og Halldór Blöndal til að gera hókípókí með þér... þannig að ég efast stórlega um að þú sért í einhverri óreglu... hvað þá á black-out-i.
hæ hér er uppskriftin að súpunni sem ég lofaði (mér) að senda þér.
Uppskriftin er:
300 gr grasker kjarnhreinsað
150gr blaðlaukur
150gr gulrætur
2 stilkur sellerí
2 stk sætar kartöflur
1.5l soðið vatn og kjúklingakraftur
1 dl rjómi/soyamjólk/mjólk
salt og pipar
kanill og múskat á hnífoddi
grænmetiskraftur
Grænmetið er allt skorið niður og sett í pott með smá slettu af olífuolíu. Látið mýkjast aðeins. Soðnu vatni ásamt kjúklingakrafti skellt útí og látið sjóða með loki í 45 mín eða skemur eftir því hversu hratt grænmetið mýkist. Þegar því stigi er náð á að sigta grænmetið frá vökvanum og setja í matvinnsluvél og mauka. Hella soðinu og maukinu aftur í pottinn og láta malla á vægum hita á meðan mjólkin/rjóminn/soyamjólkin er látin útí ásamt kryddinu og grænmetiskraftinum.
Serve and enjoy.........
p.s maður þarf að passa sig á lifrum,,, ég er tildæmis með lifrarbólgu og finnst það ekkert voðalega þægilegt....
En ég er sannfærð um að þú munir eiga góða helgi (það er bara föstudagur) og,,,, já bara góða helgi
Nei lifur. Þetta voru árin sem ég henti mér fram af svölunum til að sleppa við hókípókí afmæli. í fyrra skiptið bjuggum við bara á annarri hæð en í seinna skiptið vorum við flutt upp á fjórðu, en þá tók feitur dvergur af mér mesta fallið.
Náði samt innlögn í bæði skiptin, slapp við afmæli og eignaðist fullt af vinum á gjörgæslunni. Sem dóu reyndar flestir stuttu síðar. Getur verið að ég hafi kynnst Sigurði Kára þar? Það var einhver Sigurður þarna með heiladrep. Ég held að þeir hafi þurft að taka heilann alveg á endanum, allavega stórann hluta af honum.
Ég er voða dugleg að passa mig. Á lifrum og elmum. Og plómum og e-pillum og Halldórum og Sigurðum og..
Nr. 5 | posted by: anna |
18.11.2005 | 16:22:33 | [+] |
"þá tók feitur dvergur af mér mesta fallið".
Ertu að tala um hann Huga okkar? Ok, hann er lágvaxinn og kannski nokkrum kílóum of þungur, en að kalla hann feitan dverg finnst mér nú full langt gengið...
Fyrir það fyrsta er Hugi ekki dvergur og hann er ekki feitur heldur.
Hugi bjó líka ekki fyrir neðan mig þegar ég var 13 ára. Það gerðist miklu, miklu seinna.
Nr. 7 | posted by: anna |
19.11.2005 | 19:30:08 | [+] |
Ég er snortinn af öllum þessum hlýlegu ummælum í minn garð hérna.
Og það er alveg rétt hjá Önnu, að tæknilega séð er ég ekki dvergur. Við kjósum að láta kalla okkur "smáfólk".