www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Graskera - antiklimax
Þriðjudagur, 01. nóvember 2005

grasker1.jpg

Hér að ofan er graskerið áður en við tókum til við að umbreyta því í hryllings lampa.

grasker2.jpg

Frumburðurinn var settur í að teikna augu og tilheyrandi á kvikindið, þar sem hún var tvímælalaust lang besti kandídatinn í það á svæðinu.

grasker3.jpg

Þegar búið var að skera toppinn af graskerinu fattaði ég hvaðan art-directors kvikmyndanna Alien/s fengu útlitið af jukkinu öllu þarna.. poddinum og þessu. Ef grasker væru grá og svört að innan og ef ég væri jafn stór og strumpur væri það líklega hryllilegasta lífsreynsla sem ég gæti lent í að detta ofaní svona grasker.

grasker4.jpg

Hér hef ég gert skurð meðfram öllu auganu og er við það að fjarlægja það með hníf.

(Þarna er setning sem ég átti ekki von á að ég myndi skrifa - ever)

grasker5.jpg

Það vantar náttúrlega the grand finale í þessa myndaseríu en það er vegna þess að það gerðist svolítið óvænt í gærkvöldi. Svolítið sem ekki hefði verið erfitt að sjá fyrir.

Ég sofnaði.

Þegar við vorum búin að skera graskerið út fór ég í bað, vegna þess að það var ógeðsleg graskeralykt af höndunum á mér. Þegar ég var búin í baði, rétt fyrir tíu, ákvað ég að leggjast upp í rúm - í smá stund. Ég lagðist ofaná rúmteppið. Stuttu síðar skreið ég undir sæng og það síðasta sem ég man var að ég hugsaði "jæja, nú verð ég að hengja upp úr vélinni".

Ég vaknaði klukkan átta í morgun. Börnin ennþá grátandi svo ég lét þau taka fimmtíu armbeygjur á meðan ég kallaði þau aumingja.

Nei ég er auðvitað að ljúga þessu. Börnin sýndu þessu mikinn skilning og frumburðurinn sagðist ekki einu sinni hafa gert tilraun til að vekja mig, ég var sem rotuð.

Þetta var æðislegt. Mér er búið að líða svo vel í dag. Held að það heiti að vera úthvíldur.

-Hinsvegar fannst mér ekki leiðinlegt að skoða tölvupóstinn minn þegar ég vaknaði í morgunn:

"Færsla yfir tiltekinni upphæð - Heimabankinn"
"Færsla yfir tiltekinni upphæð - Heimabankinn"
"Færsla yfir tiltekinni upphæð - Heimabankinn"
"Færsla yfir tiltekinni upphæð - Heimabankinn"

..svo líklega mun ég ekki hætta að keyra mig áfram í vinnu - yet.

En það gerir það bara ennþá skemmtilegra, að sofna svona óvænt.


| anna | 12:29 |
comments

Rosa flott hjá ykkur, mig langar að gera svona (sé ekkert athugavert við að halda upp á hrekkjavökuna).
En mig langar svo að vita hvernig þú tókst jukkið innanúr,,, og hvað þú gerðir við það? Hef nefnilega heyrt að graskerasúpur séu mjög góðar.

kv, Forvitin smile

Nr. 1 | posted by: Elma | 1.11.2005 | 14:48:28 | [+] |

Ég veit bara að graskerspæ eru fín, amk þau sem ég borðaði með bestu lyst í amríkunni.

Nr. 2 | posted by: Unnur | 1.11.2005 | 16:14:21 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web