Sunnudagur, 27. nóvember 2005
Þegar ég varð þrítug vildi ég halda grímuball, eins og frægt er orðið.
Tóti tautaði "það kemur engin" þangað til fyrsti gesturinn mætti.
Þegar allir voru komnir fór ég uppá svið og sagði fólkinu að það yrði að þjást svona á tíu ára fresti þangað til ég dræpist því eitt kvöldið, þegar ég var í baði, birtist Guð og sagði: "ANNA! Ef ég leyfi þér að lifa til þrítugs verður þú að halda grímuball. Ef ég leyfi þér að lifa til fertugs, þá verður þú að halda grímuball og ef þú lifir til fimmtugs, þá verður þú.. " hér greip ég frammí: "jájá, grímuball á tíu ára fresti, I get it. Ertu til í að rétta mér handklæði, veit að þú ert alltaf allstaðar, en það er aðeins minna óþægilegt fyrir mig þegar þú ert ósýnilegur".
Guð rétti mér handklæði, fékk smá gel hjá mér í hárið og málið var dautt.
Það var hinsvegar svo gaman á þessu grímuballi að fólki fannst tómt RUGL að halda þetta á tíu ára fresti og spurði hvort ég gæti ekki minnkað það niður í fimm.
Mér skilst að ég hafi sagt já.
Nú hafa nokkrir aðilar komið að máli við mig og spurt hvort ég komi ekki til með að standa við loforðið sem ég gaf 13. október 2001, því fólk vill hafa góðann tíma fyrir undirbúninginn, sem mér finnst frábært og að sjálfsögðu klikka ég ekki á svona smáatriðum.
Það verður sami háttur á og síðast. Ég kem til með að senda boðskortin út uppúr áramótum á "síðuna" sem er þegar komin upp, svo bætast einhverjar upplýsingar þarna inná ásamt upprifjun á hlutum sem tengjast x-kynslóðinni og öllu því sem gerir okkur að því frábæra fólki sem við erum.
Ég ætla að leyfa öllum að fylgjast með í þetta sinn, því það hafa allir gott af því að rifja upp hvernig þetta var nú allt saman, og hver veit nema ég bjóði bara öllum að koma.
grímuball 2006
Nú er ekkert annað að gera en að fara að mæta í helvítis ræktina svo ég geti verið Lara Croft!