Mánudagur, 21. nóvember 2005
I was wrong.
Ég hef tekið þrjár paratabs og er á leiðinni í rúmið.
Var hjá tannlækni í morgun sem meiddi mig alveg hrikalega mikið. Svo mikið, að ég er heima með dúndrandi höfuðverk, eyrnaverk og deyfingin er ekki einu sinni byrjuð að fara, hann deyfði mig svo mikið. Ég hef þá eitthvað til að hlakka til. Ég get ekki talað, búin að kyngja svo miklu blóði að mig langar til að gubba.
Eins og þetta sé ekki nóg.. þá vill lifur ekki giftast mér á blogginu! -svo nú er mér illt í öllum tilfinningunum mínum líka.
Þetta er ekki sú rússíbanaferð sem mig langaði í.
Má ég þá frekar biðja um tryllutúr.
Allir draumar mínir um kæfu hafa hrunið til grunna. Þvílík vonbrigði. Þvílíkur sársauki. Allt lífið.. tilgangslaust. Búið. Gæti þessvegna tekið bara allan pakkan af þessu paratabsi, c vítamín líka og þaratöflur og athugað hvort ég kveðji bara ekki þennan myglaða, ósanngjarna (áIIII FOKKING HELL hvað mér er ILLT) helvítis heim.
Þetta er Anna. Gráti næst. Á barmi taugaáfalls. Á leiðinni uppí rúm. Með engan Albert til að hugga sig við, enga lifur.
Ekkert.
Wayne Jarvis er ekki einu sinni búinn að svara póstinum sem ég sendi í morgun.