www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Fire - sale
Laugardagur, 19. nóvember 2005

image6.jpg

Mér skilst að það sé búið að cansellera Arrested Development.

Meirihluti bandaríkjamanna vill hest horfa á svona "King of Queens" þætti, vegna þess að þeir gera ekki kröfu á neina heilastarfsemi svo þetta rennur mjúklega niður með bjórpissinu þeirra.

Fávitar.

Af þessu tilefni langar mig að deila með ykkur áheyrnarprufu sem Dr. Tobias Funke (sálgreinir sem hefur snúið sér að leiklist) er í - fyrir auglýsingu.

Ég get bara vonað að Wayne Jarvis fái eigin þáttaseríu. Ég trúi bara ekki að ég fái aldrei að sjá hann aftur. Er mikið að spá í að stofna aðdáendaklúbb svo ég geti kannski hitt hann einn daginn. Fokk hvað maðurinn er flottur. Og professional!


| anna | 12:11 |
comments

pirringur/

Helvítis kjaftæði!!

Er ekki hægt að stofna undirskriftalista sem berst gegn því að Bandaríkjamenn fái að ráða svona miklu um framtíð þátta og kvikmynda? Hvers eigum við hin að gjalda fyrir heimsku þeirra?!? Af hverju á það að koma niður á Evrópubúum þótt íbúar Biblíubeltisins vilji frekar horfa á Blue Collar TV en Arrested Development?

Dauði og djöfull!!!

Samt, eins og David Cross sagði sjálfur; ef þáttur sem hefur unnið öll þau verðlaun sem A.D. hefur unnið þarf að deyja langt fyrir aldur fram, er þá ekki vandamálið frekar hjá aumingjunum í markaðsdeildinni, frekar en þeim sem gera þáttinn?

Getum við Íslendingar ekki bara tekið að okkur að fjármagna þessa þætti áfram? Það getur ekki verið of dýrt. Jón Ásgeir? Jón Ólafs? Björgúlfur? Hvern þarf ég að totta til að fá Season 4, 5 og 6 af A.D. ???

/pirringur

Nr. 1 | posted by: Kristján Atli | 20.11.2005 | 2:18:14 | [+] |

Pant *censored* Wayne Jarvis!!

Nr. 2 | posted by: anna | 20.11.2005 | 12:59:39 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web