Miðvikudagur, 02. nóvember 2005
Ég hef verið að spá í það lengi hvernig bloggarar geti haft tekjur af síðunum sínum, sérstaklega þeir sem eru að reka eigið lén og svona.
Ég var að klippa á mér táneglurnar í gærkvöldi þegar svarið við þessari spurningu hreinlega blasti við mér.
Ég hef sumsé fundið leið til að auglýsa og hafa tekjur af bloggi!
Ég mun beita sérstakri (Libress dömubindi) taktík og vefa þessar (Landsbankinn rúlar) auglýsingar af kænsku (Melabúðin - best í heimi) inní textann þannig að það tekur (Closan flush) ekki nokkur einasti maður (Boss - kringlunni) eftir þessu.
Ef ég verð (MAC snyrtivörur) dugleg að finna mér auglýsendur (Nivea handáburður) gæti ég mögulega farið í bíó (Penninn skrifstofuvörur) einu sinni í mánuði (Háskólabíó - varist eftirlíkingar) frítt!
Ég mun að sjálfsögðu bara prómótera vörur (Bónus franskar!) sem ég nota sjálf (Bacardi!) og finnst gott að nota (Natural contours!) og hef mikla ánægju af.
Ég get ekki séð (Ég-C gleraugnaverslun) hvernig þetta á ekki að ganga (Skátabúðin) upp hjá mér.
Djöfull rokka (Skífan) ég!