Föstudagur, 04. nóvember 2005
Hvar finn ég svoleiðis?
Ég vil fá síma sem virkar helst sem landlínu og skype sími en ég verð að hafa þráðlaust headset (ekki þetta sem hangir á eyranu, ég vil spöng) - og ég held að ég sé örugglega ekki með bluetooth í vélinni minni.
Get ég notað síma sem ég kaupi í us og ef ekki - af hverju?
Getur einhver gefið mér upp hvaða skilyrði símatæki þarf að uppfylla til að hann virki á okkar kerfi (hvaða specs þarf ég að vita?) og ef einhver veit um nákvæmlega tækið sem ég er að leita að þá yrði ég mjög þakklát ef hann myndi benda mér á það.
Myndi t.d. þetta virka með þessu ?
Er eitthvað tæki til sem gerir mér kleyft að nota gamla landlínusímann líka sem skype síma?
Er einhver snillingur þarna úti með svör við þessum spurningum?
--
Update!
Vildi svo skemmtilega til að ég er snillingurinn sem fann svör við þessum spurningum. Niðurstaða málsins er:
a) Skype Dual phone hjá Hátækni.
b) Þráðlaust headset frá Svar. Mynd og specs af þessu headsetti eru ekki á vefnum en þetta er mjög svipað þessu sem er á 34 þús, nema það sem mig vantar er talsvert ódýrara. Finnst 34 þús fyrir headset tad much - en skilst að þetta sem ég ætla að fá mér sé hverrar krónu virði - og ég vil einmitt svoleiðis headset.
Djöfuls munur verður að hafa þráðlausann handfrjálsan búnað. Sósjal líf mitt mun ná nýjum hæðum og getur farið fram á meðan ég er að þrífa/elda/sauma/plokka mig/whatever!!
Þetta verða gleðileg jól - fyrir mig allavega. Líklega ekki fyrir hina.. sem ég veit símann hjá...