www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Another day saved.. by lifur
Miðvikudagur, 23. nóvember 2005

Ég er hreinlega hætt að nenna að koma hingað nema lifur sé online. Þetta er mjög ólíkt mér. Ég er ekki mikið fyrir persónudýrkun. Það er bara.. lifur kemst næst því að vera alveg eins og ég.. af öllum sem ég þekki - ekki.

Sálfræðingurinn minn segir að þetta sé classic, að ég fái menn alltaf á heilann og hugsi ekki um annað daginn út og daginn inn.

Það er reyndar bullshit. Ókey, það var pínu rétt síðast, þá gerði ég ekki nokkurn skapaðan hlut annað en að brosa og slefa, en þá var ég líka ástfangin. Í þetta sinn skil ég ekki hvernig þetta getur átt við þegar ég hef einbeitingu í að skrifa texta um ákveðið efni (ekki á síðunni minni), búa til hjálp fyrir ákveðið kerfi, svara pósti og síma, unnið í heimasíðu sem ég er að skila í næsta mánuði OG pirrað manninn sem ég elska þannig að hann blokkerar mig í sífellu á msn!

Ég held hreinlega að ég hafi aldrei verið svona productive in my life.

Ég er í fjarbúð með lifur, ligga, ligga lái...

vííííííí


| anna | 16:40 |
comments

"Ég er hreinlega hætt að nenna að koma hingað nema lifur sé onlin*."

Ég er ekki frá því að aðrir lesendur geti orðið sárir við svona. Svakalegt!

kv, tobs

Nr. 1 | posted by: Tobbi G. | 23.11.2005 | 18:23:23 | [+] |

Æ Tobbi, þú mátt ekki taka mig alvarlega, sérstaklega ekki þessa dagana. Meina.. ég er komin í fjarbúð með manni sem ég þekki ekki neitt, fólkið í vinnunni heldur að ég sé geðveik og með kynlíf á heilanum (sem er ekki rétt, ég er með það annarstaðar) og svo er ég overworked.

Auk þess sem ég held að ég hafi nú þegar sannað að ég komi víst hingað þótt lifur sé farin heim til sín.

(Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes)

wink

Lifur veit alveg að hann deilir mér með full af öðru fólki og alveg grínlaust, þó ég geti ekki birt allt sem ég skrifa, þá stend ég í mikilli þakkarskuld við alla þá sem hafa sett spor sín á síðuna mína í gegnum tíðina. Af ástæðum sem ekki verða gefnar upp - að svo stöddu.

give heart (ég er bara að sýna ykkur, ég gef það AAAAALDREI! hehe)

Nr. 2 | posted by: anna | 23.11.2005 | 19:04:10 | [+] |

Tilfinningalega óháður???

Hljómar eins og áskorun.

MÚHOHOHOHOHOHOHOHOHOHOHO

Nr. 3 | posted by: anna | 23.11.2005 | 19:36:54 | [+] |

sjís.. hvað er svona svakalega sykrað sem ég hef verið að láta ofaní mig í dag????

Nr. 4 | posted by: anna | 23.11.2005 | 19:37:29 | [+] |

Suss, áskorunum tek ég bara á fimmtudegi. Þá er svo stutt í vikulok sjáðu til. Það má nefnilega bara skammast sín til vikuloka en á nýrri viku byrjar nýtt líf - og þ.a.l. ný tækifæri til að skammast sín. Vítahringur. Vont.

kv, tobs

Nr. 5 | posted by: Tobbi G. | 23.11.2005 | 19:50:32 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web