Miðvikudagur, 09. nóvember 2005
Ég er að leggja lokahönd á heimasíðu konunnar sem smitaði mig af hundaæðinu sem ég er með og ekkert lyf vinnur á - annað en.. hundur.
Ég er frekar ánægð með þessa síðu, þá sérstaklega hvað eigandinn er duglegur að setja inn efni. Það er ekkert gaman að búa til draugasíður.
Hugi hafði samband við mig áðan og benti mér á að plögga tilnefningar fyrir íslensku vefverðlaunin 2005 þar sem vefurinn er tilbúin og farin að taka við tilnefningum.
Held ég fari með rétt mál þegar ég segi að korteri eftir að vefurinn opnaði (og Hugi lét vita af því) voru rúmar 300 tilnefningar komnar í pottinn!
Ég frábið mér tilnefningu, ég er upptekin við að afhenda á verðlaununum og það gæti komið soldið asnalega út hehe
Kannski þegar ég er sest í helgann stein og farin að blogga um ristilkrampa og læsta mjöðm, þá virkja ég lesendur til að kjósa mig þannig að ég vinni með landslide sigri!
BOOJAH!