Fimmtudagur, 24. nóvember 2005
Hey! En Dreki í staðinn fyrir Albert? Ég sá að mannanafnanefnd, það kolruglaða kommúnulið, hefur samþykkt "Dreki" sem mannanafn. Þeim finnst hinsvegar bara RUGL að fá að bera millinafnið Valberg. Hvar ætli þeir fái svona gott gras? Umhverfisráðuneytinu?
Dreki Valberg verður ekki að veruleika úr þessu. Hvenær ætli litli Breki Dreki fæðist? Hvað ætli taki hann langann tíma að fyrirgefa foreldrum sínum?
Ég ætla fram að ná mér í vatn og tékka á hvernig nafnið Dreki kemur út
- í köllun.