www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Aðalfundur
Föstudagur, 25. nóvember 2005

Á mjög svo professional og serious aðalfundi anna.is áðan hittist stjórn síðunnar til skrafs og ráðagerða.

Þar voru eftirfarandi ákvarðanir teknar:

Hluti síðunnar sem kallaður hefur verið "beauty is pain" mun verða fjarlægður innan skamms, einfaldlega vegna þess að Anna nennir aldrei að skrifa neitt þar. Þetta gengur ekki til lengdar. Flokkurinn "sounds" fær að fjúka líka, ekki vegna áhugaleysis heldur vegna tímaskorts.

Í staðinn mun koma nýr greinaflokkur sem vantar ennþá ásættanlegt nafn, en þar mun Anna skrifa greinar um efni sem er henni töluvert ofar í huga en fegurð sem ætti að gera það að verkum að hún nennir að skrifa um það miklu oftar en fimm sinnum á ári. Stjórnin fann alveg magnað orsakasamhengi á milli þessara tveggja hluta: áhuga og framleiðni. Þetta hefur verið sent mannfræðistofnun til nánari athugunnar.

Þetta verður heilmikil áskorun og pressa fyrir Önnu þar sem hún mun reyna að skrifa af alvöru í þennan greinaflokk. Eitthvað sem Anna hefur aldrei nokkurtíma gert, nema einstaka sinnum þegar hún svarar tölvupósti í vinnunni. Mun tíminn leiða í ljós hvort svona efni á nokkurt erindi á síðuna.

Eitt af stærstu málefnum aðalfundarins var að ákveða hvað ætti að gera við tengla á aðra bloggara sem virðist vera krónískt vandamál sem engin viðunnandi lausn finnst á. Bæði virðast þeir sem Anna linkar á allir finna hamingjuna (1) og hætta að blogga, auk þess sem Anna linkar ekki á alla sem hún vill linka á og þeir komast ekki fyrir á þessum stað á síðunni, vegna þess að stjórnin ákvað að bæta við öðrum hlekkjabálk sem Anna þarf að nota við sín daglegu störf.

Stjórnin þarf að taka ákvörðun um hver af eftirfarandi valkostum verður ofaná í þessu máli:

1. Hlekkja á alla bloggara á sér síðu á vefsvæðinu.
2. Hlekkja á enga bloggara.
3. Halda áfram að hlekkja á þá sem eru fyrir og bæta ekki við nýjum.

Lokaákvörðun um þetta efni verður tekin innan tíðar á sérstökum eftirfylgnisfundi sem haldin verður á Grillinu næstu helgi.

Myndin efst til vinstri verður óbreytt. Stjórnarmenn eru svo ánægðir með myndina og finnst hún svo góð að þeir telja góðar líkur eru á að þetta sé bara alls ekki mynd af Önnu og finnst tímasóun að reyna að finna nýja mynd í hennar stað.

ravings, song of the week, gallery, movie hall of fame, jokes og guestbook mun vera áfram á sínum stað, því stjórnin veit hvað þetta eru mikilvægir þættir í fyrir heild síðunnar. Ég spái því samt að stjórnin muni kjósa gegn "the notebook" í galleríinu og að sú myndasería verði fjarlægð innan fárra daga.

Litasamsetning verður eins ásamt allri grafík og ekki verður einu sinni hugsað í áttina að því að breyta útliti síðunnar á nokkurn einasta hátt, nema mögulega eftir tvö ár, þegar fer að hægjast um.

Að lokum var mikið rætt um að halda minningarathöfn fyrir þá lesendur sem týnst hafa í Tíbet á síðasta ári, en það eru:

Organistinn
og
Tony Clifton

Stjórnin minnist þeirra með söknuð í hjarta, kúabjöllu óm í eyrum á amerískum kagga - og þriggja mínútna þögn.

Ég vona að þið hafið það gott strákar, hvar sem þið eruð.
- í Tíbet.


| anna | 18:10 |
comments

Gott að stjórnarmenn voru almennt sammála, annars gæti fundurinn hafa endað með slagsmálum og látum.

Nr. 1 | posted by: Unnur | 25.11.2005 | 19:14:42 | [+] |

Ég er löngu búin að losa mig við þennan eina þarna sem gat aldrei verið sammála öllu sem ég sagði. Svo nú er það bara ég og öll hin alter egóin mín sem hittast og fara yfir málið.

Einfalt og þægilegt.

Nr. 2 | posted by: anna | 25.11.2005 | 19:17:50 | [+] |

Svakalega ert þú heppin. Mín alteregó eru næstum aldrei sammála idunno

Nr. 3 | posted by: beggi dot com | 25.11.2005 | 20:27:31 | [+] |

"... nema mögulega eftir tvö ár, þegar fer að hægjast um."

Mér finnst magnað að það sé komið tveggja-ára-plan yfir höfuð. Og að það hægist um þá. Magnað. Ekki hafði ég ímyndað mér Önnu.is sem konu mikils langtíma skipulags. First-net-impressions eru greinilega ekki allt.

Góða helgi.

kv, tobs

Nr. 4 | posted by: Tobbi G. | 25.11.2005 | 20:31:39 | [+] |

Beggi. Munurinn liggur líklega í... years of therapy.

hehe

Ég kem stundum á óvart.

Farin í afmæli, góða helgi!

Nr. 5 | posted by: anna | 25.11.2005 | 20:49:25 | [+] |

það er eitt að hafa alter-ego, annað er að allir komi sér saman og nenni að gera eitthvað

Nr. 6 | posted by: Maggi G | 26.11.2005 | 0:52:38 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web