www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Það sem fólki finnst skemmtilegast
Fimmtudagur, 17. nóvember 2005

Í síðustu getraun spurði ég lesendur hvað þeim fyndist skemmtilegast (að lesa um):

Jude Law snýr aftur, öflugri en nokkru sinni fyrr

Einungis 7.1% vildu lesa meira um Jude. Augljóst að lesendum er vel við mig þar sem komið hefur í ljós að maðurinn á erfitt með að halda að sér höndum, og öðrum líkamshlutum, nálægt einhverju sem hefur púls.

Anna fer að deita nýtt celebrití að eigin vali

Ekki voru mikið fleiri, eða 9.5%, sem vildu að ég fyndi mér nýtt celebrity til að deita. Ég hef grun um að lesendur treysti ekki eðlisávísun Önnu þegar kemur að frægu fólki því hún velur bara eitthvað RUGL sbr. Jude og nú síðast: Jack.

Anna heldur jarðtengingunni og verður áfram karlmannslaus

Ansi margir hópuðu sig í kringum þennan möguleika, eða heil 17.9%. Augljóst að margir lesendur gera sér grein fyrir hversu slasað hjarta Önnu er og að það muni líða langur tími þangað til hún setur það á defrost í örbylgjunni.

[Anna á in fact ekki örbylgjuofn og langar ekki í einn. Hana dreymir hinsvegar um að eignast frystikistu]

Anna giftist lifur - á blogginu og eignast með honum kæfu

20.2% finnst þetta skemmtilegast og það finnst mér afar áhugavert. Þá sérstaklega í ljósi þess að lifur er forboðin. Vissulega lítur út fyrir að lifur og ég komum úr sama tilraunaglasinu, enda hef ég alltaf sagt að ég vildi ekki án lifur vera en þessi ákveðna lifur er forboðin. Þó það endist náttúrlega ekkert frekar en nokkuð annað.

Anna gerist lesbísk og lýsir í smáatriðum reynslu sinni

Það voru alveg jafn margir sem vildu lesa um kirkjuklukkur og lifur og vildu að ég gerðist lesbísk og lýsti í smáatriðum reynslu minni. Þetta var kvikindisleg spurning, viðurkenni það, og sett inn af beiðni karl-mannréttindardeildar jafnréttisráðs sameinuðuþjóðanna sem vinnur að því að afsanna að margir karlmenn hafi one track mind. Þá vitiði það kæru professionals. Hate to say "I told you so" - but.. I told you so.

Valmöguleikinn hér að ofan er settur inn til að sjá hversu margir karlmenn lesa síðuna

Nú veit ég að 7.1% karlmanna sem lesa síðuna mína, lesa ekki síðuna mína. Annars hefðu þeir kosið alvöru valmöguleika í staðin fyrir þetta rugl. Ég verð að fyrirgefa þeim, enda hafa þeir sjálfsagt verið annars hugar eftir spurninguna á undan, ákveðið að skoða aðrar heimasíður og völdu bara næsta valkost, hvað sem það var, áður en þeir fóru á google og slógu inn "censored".

múhohohohohoho

17.9% fannst "múhohohohohoho" skemmtilegast, sem eru engar fréttir í sjálfu sér. Þetta kom m.a. fram í síðustu fjölmiðlakönnun Gallup.

Eins og sjá má dreifast atkvæðin ansi jafnt á valmöguleikana svo ég fékk í raun enga afgerandi niðurstöðu um hvað lesendum finnst skemmtilegast.

Enda skiptir það engu máli, ég kem auðvitað til með að halda áfram að skrifa það sem mér finnst skemmtilegast.

MÚHOHOHOHOHOHOHOHOHO


| anna | 11:45 |
comments

There she was just walking down the street.
Sining...

Og botnaðu nú!

Nr. 1 | posted by: lifur | 17.11.2005 | 13:28:27 | [+] |

Dúúwah diddí diddí damm diddí dú!

Nr. 2 | posted by: anna | 17.11.2005 | 13:33:54 | [+] |

Flott!
Nú færðu vísbendingaspurningu!
Rétt svar eftir fyrstu vísbendingu gefur 3 stig, þú færð 2 eftir aðra og svo koll af kolli.

Spurt er um dýr.
Dýrið er með stóra og sterka kjálka og um 250.000 heilafrumur.

Nr. 3 | posted by: lifur | 17.11.2005 | 13:46:23 | [+] |

Ég gleymdi að segja að þú hefur bara til kl. 14 til að svara!!!
Koma svo!
Tíminn er peningar!!!!

Nr. 4 | posted by: lifur | 17.11.2005 | 13:58:29 | [+] |

RANGT (og móðgandi) SVAR!!!

Vísbending no. 2:
Dýrið getur verið í 2 vikur í kafi.
(þú hefur til kl. 14.20. Tikk takk tikk takk...)

Nr. 5 | posted by: lifur | 17.11.2005 | 14:04:36 | [+] |

Afhverju verður mér skyndilega hugsað til auglýsingalagsins Thirty Ways Your Liver Loves You; nýr texti við Thirty Ways To Leave Your Lover með Paul Simon?

Nr. 6 | posted by: Kalli | 17.11.2005 | 14:05:03 | [+] |

LIFUR!

Ég er í þessum töluðu orðum að loka díl svo að allt starfsfólkið hérna fái tvo 23' widescreen skjái á borðin sín! Að hafa bara einn svona skjá er tómt RUGL og ég tek ekki þátt í svona vitleysu. Ég er (stundum) mjög upptekin kona!

Þetta er krókódíll. Ætlarðu að gefa mér einn? Eða fara með mig þangað sem þeir búa og sýna mér einn? Ég væri til í það.

Já og áður en ég gleymi þá er ég með skilaboð til drphil

Dear Dr. Phil. They are not magic tricks, illusions. "Control your anger or I will not have you on my show with your ILLUSIONS".

A trick is something a whore does for money.

Or cocaine.

Nr. 7 | posted by: anna | 17.11.2005 | 14:21:13 | [+] |

fokking hell! Lítur út fyrir að ég hafi rétt í þessu verið að semja af mér..

Nr. 8 | posted by: anna | 17.11.2005 | 14:22:45 | [+] |

Thirty ways your liver loves you? Hljómar pínu eins og sjálfshjálparbók fyrir alkóhólista. Nei þá væri það hate. Doh! hamster

Nr. 9 | posted by: anna | 17.11.2005 | 14:25:36 | [+] |

Rangt svar! (soldið góð upphrópun hjá þér samt)
Síðasta vísbending: dýrið getur borið tuttugu falda þyngd sína (til kl. 14.40)

Kalli: ef spurt væri um lag, væri lagið: "How am I suppose to liver without you" með hr. Bolton.
EN það er spurt um dýr og þú skalt einbeita þér að því ef þú ætlar ekki að skíttapa fyrir Önnu sem er dularfullt góð í spurningaleikjum!

Nr. 10 | posted by: lifur | 17.11.2005 | 14:27:28 | [+] |

Vissulega eru tveir skjáir betri en einn!
Rétt eins og tvær krakkhórur eru betri en ein... eða það segir Phil alltaf...

Nr. 11 | posted by: lifur | 17.11.2005 | 14:29:03 | [+] |

Þetta hlýtur að vera krókódíll. Það er til krókódíll sem segir einmitt TIKK TAKK TIKK TAKK TIKK TAKK!

Já og ég er ekki góð í spurningaleikjum og hef aldrei verið. Ég veit ekki nógu mikið af hlutum sem ég þarf ekki að vita.

Nr. 12 | posted by: anna | 17.11.2005 | 14:34:32 | [+] |

Kræst, hann drphil heyrir svo illa. Ég var að tala um galdradúkkurnar "magic-pricks" sagði ég, og átti við að maður stingur í dúkkuna og voila! The magic has happend! Ekki trick, ég stend við fyrri fullyrðingu. Var nú reyndar að þú myndir spotta hvaðan ég fékk það en what the hey...

Vissirðu að við drphil erum góðir vinir síðan úr barnaskóla? Mjög sérstök tengsl á milli okkar. Hann fann t.d. á sér að eitthvað hafði opnað fyrir flóðgáttir af uppsafnaðri reiði hjá mér um helgina þannig að ég var ófær um að tjá mig opinberlega og hann sendi mér hjálp sem varð til þess að ég confrontaði sorsinn sem varð til þess að ég frelsaðist - eins og drphil sagði mér að myndi gerast!

Svona er lífið stundum alveg eins og í ævintýrunum.

Nr. 13 | posted by: anna | 17.11.2005 | 15:03:05 | [+] |

jáhá!
Phil er frábær strákur, það veit ég manna best.
Þegar við unnum saman á bómullarbýli í Virginíu kenndi hann mér lag sem styttir mér virkilega stundirnar við tínslu í kæfandi hitanum. Það er svona:
Tíu litlar krakkhórur húkand'undir vegg.
Tíu litlar krakkhórur húkand'undir vegg.
Og ef að ein lítil krakkhóra tekur allt of stóran skammt.
Þá eru níu litlar krakkhórur húkand'undir vegg.
Níu litlar krakkhórur húkand'undir vegg.
og ef að...

Nr. 14 | posted by: lifur | 17.11.2005 | 15:18:06 | [+] |

Vá hvað væri slæmt að fá þetta lag á heilann og vera t.d. í brúðkaupi eða skirnarveislu. Næstum því jafn slæmt og að fá "loose shoes" á heilann.

Nr. 15 | posted by: anna | 17.11.2005 | 15:27:11 | [+] |

Ég söng krakkhórulagið akapelló að lokinni bænastund sem haldin var í kringum útför Díönnu í Kaþólsku kirkjunni. Man ekki betur en söfnuðurinn hafi verið farið að taka undir þegar ég var komin niður í 3 litlar krakkhórur.
Áðan sagðistu ekki vita nógu mikið af ónauðsynlegum hlutum til að vera góð í spurningarkeppnum, en síðustu daga hefurðu talað um:
ísjakasúpu, tifandi krókódíl og núna "loose shoes"!
Hatarðu mig?
Eða af hverju værirðu annars að reyna að drepa mig úr forvitni?

Nr. 16 | posted by: lifur | 17.11.2005 | 15:34:20 | [+] |

Þetta sem ég hef verið að tala um er allt bráðnauðsynlegt að vita.

Láttu nú ekki svona lifu. Það þurfa allir að vita hvað ísjakasúpa er og ekki síður hvað einkennir krókódílinn úr pétur pan. Iss..

Loose Shoes er hinsvegar nafn á verstu bíómynd sem gerð hefur verið frá upphafi - og það þurfa ALLIR að vita þetta svo að ENGIN þurfir að horfa á hana. On the other hand.. þá er rusl stundum svo vont.. að það verður gott, eins og gömul pizza - á skerí hátt - allavega. Ég var svo heppin að vita að þetta er ömurleg mynd svo ég gat hraðspólað beint á það sem var gott og horft á það, en það er frumstætt myndband við lagið "loose shoes" sem er, eins og áður sagði, titill myndarinnar.

Nú.. þetta er svona big band atriði, blökkumaður uppá sviði að syngja lag um lífið, vonir, drauma, þrár.. en viðlagið er frekar offensive og fer beint á heilann á öllum sem hlusta. Alveg stórmerkilegt. Þetta lag var t.d. notað í hernaði alveg þangað til Amnesty fékk bann á það '84.

Þessvegna er erfiðara en andskotinn að finna lagið í dag. En nú vill svo skemmtilega til að ég var skæruliði í nokkur ár og átti eintak af þessu ágæta lagi en ég á það líklega ekki lengur því HÓRAN, harði diskurinn minn, dó. En líkur eru á að ég eigi það einhverstaðar á geisladisk og þá er það komið á nýja diskinn minn.

Leimmér að tékka á því fyrir þig skan. Finnst þér ekki sætt af mér að reyna að drepa þig úr forvitni? Ég er svo misskilin.

Nr. 17 | posted by: anna | 17.11.2005 | 16:30:58 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web