www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Á bjöllunni
Fimmtudagur, 24. nóvember 2005

Þú fyrirgefur Lifur, ég þarf að sjá nákvæmlega hvernig svona hlutir koma út - í pixlum.

--

Bessastaðir:

Lifur Valberg Líndal
Anna Laufey Líndal
Breki Dreki Briem Lifrarson Líndal
Mist Eik Lifrardóttir Líndal
Eilíf Ögn Lifrardóttir Líndal
Margeir
Albert

--

Já.

Þetta er mjög töff.


| anna | 19:47 |
comments

Eilíf Ögn Lifrardóttir Líndal sounds good, Mist Eik er nú bara classík

Nr. 1 | posted by: Maggi G | 25.11.2005 | 4:24:42 | [+] |

Getum við ekki eignast eitt örverpi sem heitir Lind Ýr Líndal... það er ógeðslega töff í köllun!

Nr. 2 | posted by: lifur | 25.11.2005 | 9:10:31 | [+] |

Fokk!
Margeir sá þennan lista og trylltist!

Nr. 3 | posted by: lifur | 25.11.2005 | 9:53:22 | [+] |

Af hverju í ósöpunum?

Nr. 4 | posted by: anna | 25.11.2005 | 9:57:07 | [+] |

Vill ekki að neinn komi upp "á milli" okkar.
Hann er í óstöðvandi grátkasti...
Ég get ekkert unnið!
GERÐU eitthvað!

Nr. 5 | posted by: lifur | 25.11.2005 | 10:10:45 | [+] |

Krúttið!

Segðu honum að það geti ekkert komið upp á milli okkar. Við lifur verðum saman til æviloka. Alltaf. Jafnt full sem edrú. Hann þarf ekki að hafa nokkrar áhyggjur af þessu.

Ef þetta er ekki nóg til að slá á þessa móðursýki held ég að þú ættir að láta svæfa hann.

Nr. 6 | posted by: anna | 25.11.2005 | 10:21:11 | [+] |

Skrítið... þetta er það nákvæmlega sama og Margeir sagði við mig um þig í símann...
Eini munurinn er að hann hló rosalega hátt og vandræðalega lengi eftir að hann stakk upp á að láta svæfa þig.

Held hann sé undir of miklu álagi.

Nr. 7 | posted by: lifur | 25.11.2005 | 10:28:08 | [+] |

Gefðu honum valíum þá róast hann. Þú stelur þessu öllu frá afa þínum hvort sem er. Hvernig hefur hann það annars?

Ég er ekki viss um að ég treysti mér til að búa undir sama þaki og Margeir lengur. Í morgun þegar ég fór frammúr rúminu steig ég í undirskál fulla af vatni og ég hefði getað svarið að ég heyrði einhvern hvísla: "drukknaðu vonda kona".

Kannski er dýrasálfræðingur svarið.

Nr. 8 | posted by: anna | 25.11.2005 | 10:33:26 | [+] |

Margeir er þegar í viðtalsmeðferð.
Hann vill taka fram að miltisbrandurinn í seríossinu þínu var ekki þar að hans sök.
Hann sagði orðrétt þegar ég gekk á hann: "It's just not my style".

Nr. 9 | posted by: lifur | 25.11.2005 | 12:51:53 | [+] |

Þetta útskýrir ýmislegt. Doddi er sá eini á heimilinu sem borðar cheerios. Ég hélt að hann væri bara svona þreyttur, búinn að sofa í þrjá daga.

LIFUR! Segðu Margeiri að DODDI ER UPPÁHALDS STRÁKURINN MINN Í ÖLLUM HEIMINUM, en fast á hæla hans kemur Breki Dreki Briem Lifrarson Líndal, OG EF ÞAÐ ER EITTHVAÐ AÐ HONUM ER EINS GOTT FYRIR ÞIG AÐ EIGA LIFNAPILLU EÐA EITTHVAÐ!

Annars verð ég svo reið, að ég yrði ekki hissa þótt ég myndi taka um tunguna á honum, vefja henni utanum hausinn áður en ég SLÍT HANN AF!

Annars er ég líka í samtalsmeðferð og það gengur bara vel. wave

Nr. 10 | posted by: anna | 25.11.2005 | 13:01:12 | [+] |

*hóst*
... hvað segirðu um "lifrarpillu"?
Margeir sendir Dodda baráttukveðjur og bætir við: "ps. það var ekki ég sem átti við bremsurnar í bílnum hennar önnu"

Nr. 11 | posted by: lifur | 25.11.2005 | 13:21:28 | [+] |

Ég var að heyra í Dodda, hann nennti bara ekki í skólann svo þetta er allt í lagi. Hann er búin að vera að spila playstation og borða ís á meðan ég er í vinnunni. Þessi dúlla. Þú mátt samt alveg gefa mér lifrarpillu, held að það geti bara gert mér gott.

Það er hinsvegar orðið ljóst að Margeir á við mikil geðræn vandamál að stríða og það fer að koma að því að þú verðir að velja: Margeir.. eða mig.

Ég býð Albert ekki upp á að búa við svona óöryggi. A.m.k. á meðan þú neitar að vera á staðnum til að passa okkur. Auk þess endar þetta bara sem lögreglumál með nýja frumvarpinu og ég held að Margeir endist ekki í viku á bak við lás og slá.

Nr. 12 | posted by: anna | 25.11.2005 | 13:30:50 | [+] |

(don't go there? Not to worry, ég er að geyma það)

Ertu að segja mér það blákalt að þú eigir fleiri fjarbýliskonur en mig?

Það verður víst einhver að gera þér þetta ljóst, Margeir er dópisti og aumingi. Skil ekki hvenig þú nennir að hanga með hann syngjandi einhver sænsk ættjarðarljóð útúr reyktur og ruglaður alla daga. Það kemur ekki "einhver" ítrekað og fær sjónvarpið og i-poddinn "lánað". Opnaðu augun elsku Lifur.

Ég held við þurfum að fara til fjölskylduráðgjafa.

Nr. 13 | posted by: anna | 25.11.2005 | 13:51:12 | [+] |

það er hér með skjalfest að við ætlum greinilega EKKERT að vinna í dag!
Margeir var að hringja segir að það hafi verið tvífari hans sem henti sjónvarpstækinu ofan í bakarið þitt.
Svo spyr ég, hvernig ætti Margeir að geta lært textana í sænsku ættjarðarlögunum ef hann hefði ekki i-poddinn minn í láni?
Dvergurinn segist fyrr dauð liggja en að mæta í fjölskylduráðgjöf.

Nr. 14 | posted by: lifur | 25.11.2005 | 14:03:22 | [+] |

FINE! Ég er búin að setja símsvarann á!

Þessi tvífari Margeirs er FÁVITI því það var hvorki Anna NÉ vatn í baðkarinu þegar hann gerði þetta svo það eina sem hann hafði uppúr krafsinu var einhvert vaxtarræktartröll sem ég tældi til mín til að færa sjónvarpið aftur inní stofu!

Hlífðu mér við sögunum frá þessum óhugnarlegu námsárum þínum í svíþjóð. Nóg að þurfa að horfa á allt þetta ömurlega porn.

Dvergurinn hefur ekki atkvæðisrétt, manstu? Við vorum búin að ákveða að til þess að hafa rétt til að kjósa um fjölskyldumál yrðir þú að vera minnst 1.64 m. Gerðum við þetta ekki þegar börnin ætluðu að þvinga okkur til að hafa heitan mat á kvöldin?

Hvernig var þetta aftur?

Nr. 15 | posted by: anna | 25.11.2005 | 14:16:27 | [+] |

Flott!
Þá eru það bara við Margeir sem höfum atkvæðisrétt!
Til að forðast allan misskilning þá er ég að tala um sama Margeir og kom ekki nálægt því að skrúfa frá gasinu í geymslunni þinni.

Nr. 16 | posted by: lifur | 25.11.2005 | 14:29:02 | [+] |

Já, losaðu þig í leiðinni við myndina "365 ways to get rid of the "distance-shop-woman" of your loved one"

Nr. 17 | posted by: lifur | 25.11.2005 | 15:37:44 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web