Fimmtudagur, 10. nóvember 2005
Vinnuvélin mín er búin að vera að gera mig gráhærða og í morgun fraus kvikindið enn eitt skiptið. Ég varð mjög pirruð eða.. greatly annoyed. Kerfisstjóranum fannst alveg nóg komið af veseni í kringum vélina mína og setti upp mónitor til að fylgjast með því hvað í andskotanum ég væri að gera sem krassaði vélinni alltaf.
Ég er að vinna á G-5.
Fimm mínútum eftir að hann setti upp mónitorinn kom hann fram og bað mig að kíkja á hversu mikið minni væri í vélinni.
256 MB
256 MB
Hann opnaði vélina, tók myndir af því hvernig minnið hafði verið sett í hana, tók minnið úr og setti það rétt í.
Nú er ég með 2.25 GB af minni.
Lítur út fyrir að ég verði dökkhærð eitthvað áfram og kannski er möguleiki á að ég fari að tjanta "mac rules" eins og hinir makkanotendurnir - þegar þetta drasl fer loksins að virka!
Mér finnst að söluaðilinn eigi að bjóðast til að greiða fyrir áfallahjálp eftir margra mánaða hjakk á minnislausu drasli. Geta allavega gefið mér iPod í skaðabætur. hehe