Fimmtudagur, 10. nóvember 2005
Ég grét í allt gærkvöld vegna þess að helvítis djöfulsins HÓRAN, harði diskurinn minn, er ónýtur. Læknarnir segja að líklega sé blóð farið að streyma um gamlar minnisstöðvar og að það sé eðlilegt að upplifa stór áföll frá því ég var ung kona. Þá eru góðar líkur á því að ég fari næst í ástarsorg.
Þá verður nú gott að hafa Albert V sér til huggunnar.
Í morgun skilaði ég frá mér nokkuð eðlilegum hægðum svo ristillinn hélst að mestu inni. Ég held að það sé steypan sem þeir gefa manni á morgnanna hérna en er ekki viss. Þetta er viðbjóður og maður kúgast af því að drekka þetta en það er skárra en að *censored* meðalstórum *censored* tvisvar í viku. Það verður bara að segjast eins og er.
Gunnar á 3-b er búin að vera að *censored* í þrjá daga núna. Ég læt sem ég taki ekki eftir því enda maðurinn búinn að reyna við allt kvikt á stofnuninni frá því hann kom hingað '53. Fáviti. Það eru menn eins og hann sem hafa viðhaldið sannfæringu minni í gegnum árin með að hundar séu töluvert skynsamari kostur en karlmenn. Mér er alveg sama þótt fólk tali um að ég sé skrítin. Þetta fólk má hoppa uppí rassgatið á sér. Sem minnir mig á að Didda er komin með bleyju. Aumingja vesalings konan.
Doddi kom við um helgina með konuna sína og ófríðu börnin hennar. Hann hefur staðið við það sem hann lofaði mér sem barn og passar uppá mig. Konan hans þolir mig ekki. Hún er líka helvítis andskotans djöfulsins HÓRA og það var augljóst frá fyrsta degi að hún væri ekki nógu góð fyrir hann Dodda minn. Henni að kenna að ég var send hingað. Hún heimtaði að Doddi flytti til sín! Djöfulsins frekja og yfirgangur í þessum ungu druslum alltaf. Mér finnst algjört RUGL þegar karlmenn eru að flytja að heiman fyrir sextugt. Þeir hafa bara engan þroska á þeim aldri til að hefja sambúð eða takast á við lífið. Ég get nefnt mýmörg dæmi um það! Læknarnir segja að ég sé að með byrjunareinkenni alzheimer og þessvegna er ég orðljót stundum. Helvítis læknatussur. Held þeir ættu að finna sér eitthvað betra að gera en að níðast á okkur gamalmennunum. Ég er ekki orðljót. HÓRUR!
Nú hef ég ekkert heyrt frá Jóhönnu í viku en hún sendir mér örugglega hreyfimyndadagbók bráðum frá Japan. Þetta eru góðir krakkar sem ég á. Sem verður ekki sagt um þessa andskotans maka sem þetta dró upp af því er virðist eingöngu til að skaprauna mér. *censored* og *censored*! Allt saman!
Í dag koma nemar frá Iðnskólanum sem lita á okkur hárið og augabrúnirnar. Ég vildi óska að ég hefði val um að sitja hjá, í staðinn fyrir að líta út eins og helvítis trúður í viku. Iðnskólanemaskítapakk sem þetta er. Hver vill hafa hárið á sér blátt á litinn þegar grænt og gult er í tísku? Krakka*censored*.
Gísli gerði uppreisn í mötuneytinu í gær, stóð upp og kallaði "ég neita að borða þennan viðbjóð sem hefur verið borin hér á borð! Ég er búinn að fá nóg! Hvað er að ykkur hinum? Sýnið samstöðu! Er þetta það sem þið viljið?" og svo stakk hann skeiðinni í hvíta jukkið og reiddi hana á loft þannig að gumsið lak niður á diskinn.
Framliðna pakk sem er hérna. Ég ætlaði að standa upp en helvítis fíflið hún Gunna brá fyrir mig fæti og ég féll afturfyrir mig á bekkinn og braut í mér rófubeinið. Ég jafna um hana seinna með skeið þversum uppí görnina! Slopparnir tóku Gísla og ég held að þeir hafi drepið hann. Annaðhvort það eða hann hefur verið færður á elliheimili sjálfstæðismanna þarna niðrí gamla seðlabankahúsinu. Fávitar.
Jæja, nú heyri ég að liðið er að safnast saman til að horfa á enn eitt rerun-ið af fréttum stöðvar tvö síðan 2005. Ég sé ekki hvað þessar kellingar sjá við Loga. Kallarnir hérna eru svo heiladauðir að þeir slefa líka yfir honum. Halda að hann sé kona. Ég ætla að forða mér út að keyra með Albert V í rafmagnsshjólastólnum sem Baugur group var að gefa okkur. Þá eigum við fjóra.
Ég held að *censored* slopparnir ritskoði síðuna mína. *censored* í helvíti! Gott að ég lét forrita símann minn á sínum tíma til að senda mér skilaboð í hornhimnuna daglega um að ég haldi úti bloggi og gefa mér upp notendanafnið og lykilorðið. Annars myndi ég aldrei muna eftir að skrifa neitt hérna.