www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Un-be-fucking-leaveable
Laugardagur, 22. október 2005

Í gær komst ég að því hver Igor er og ég átti ekki von á að þetta væri.. hann.

Þetta líf kemur stöðugt á óvart, það verður að segjast eins og er.

Eftir vinnu fór ég á Hótel Glym með félagi dauður. Við drukkum hvítvín í heita pottinum og drógum rúnir úr poka. Ég dró rúnina Tyr.

tyr.jpgThis is the rune of Tyr, God of war, giver of victory and protector from harm.

Tyr has a strongly outgoing, directed forward energy. The attribute of Tyr is the sword, and accordingly he represents great unselfish courage, and a masculine warrior energy. With clarity and wisdom he cuts through the deepest of darkness.

Tyr brings the courage to enter dark tunnels, without knowing where or when one will come out to the light again.

Tyr gives an inner balance, and a lot of masculinity. This rune, if any, symbolizes the potency of manhood, on all levels.

--

Mér finnst þetta fyndið því fyrir stuttu síðan dró ég "sverða-drottingu". Greinilegt að ég er tilbúin í stríð. Veit bara ekki við hvern. Ætli ég sé að fara að gifta mig?

Varla. Sem er ekki gott því þessa dagana er ég á stöðugu egglosi. Bæði eru vinkonur mínar allar ófrískar og svo þekki ég mann sem hefur svakalega egglosandi áhrif á mig. Ég má ekki hugsa um hann þá fæ ég egglos og þegar ég hugsa oft til hans má eiginlega segja að ég fari að hrygna!

Jesús góður og allir dvergarnir!

Eftir heita pottinn borðuðum við æðislegan mat á þessu annars furðulega hóteli. Að koma þarna inn er eins og að koma heim til fólks sem vissi ekki hvenær það átti að hætta að safna dóti og hefur engann ákveðinn stíl.

Mér fannst þetta ridiculous, en ég veit ekki hvort það var fordrykkurinn eða lambakjötið eða bara að sitja í góðum hópi og hafa það notalegt.. sem gerði það að verkum að mér fannst heimilislegt og gott að hafa allt þetta skrítna dót í kringum mig. Ég var með vinkonu minni í herbergi og við sátum og kjöftuðum til hálf þrjú. Í morgun spurði ég hana hvort ég hefði nokkuð haldið fyrir henni vöku með hrotum en hún sagði mér að ég gæfi ekki frá mér eitt einasta hljóð í svefni og þrisvar fór hún og tékkaði á púlsinum á mér því hún hélt að ég væri dauð.

Hún er reyndar ekki fyrsta manneskjan sem tékkar á púlsinum á mér þegar ég er sofandi svo ég sef líklega eins og dauð, e.k. Þyrnirósarsvefni.

Karlmenn. Í gegnum tíðina hefur verið logið að mér að ég samkjafti ekki í svefni og hrjóti eins og múrbrjótur! En nei.. ég sef fullkomlega hljóðlaust.

Í morgun borðaði ég morgunverð í *einn og hálfann klukkutíma* til að friða þær sem finnst ég vera orðin of horuð. Ég gat varla staðið upp eftir þetta og efast um að ég þurfi að borða meira alla helgina.

Þetta var virkilega notaleg ferð.

Eins og flestar okkar sem voru þarna höfðum við komið börnunum af okkur og farið beina leið út úr bænum eftir vinnu. Nú er ég komin heim og það fyrsta sem ég þarf að gera er að taka til. Þegar það er búið.. fer ég að vinna.

-Og reyna að ná utanum afhjúpun gærdagsins.


| anna | 15:06 |
comments

Ég vona að þú jafnir þig fljótt.

Nr. 1 | posted by: igor | 23.10.2005 | 23:11:18 | [+] |

avk rivet nuts tagua nuts carving titanium fasteners nuts bolts tagua nuts carving bullet lug nuts ibanez nut files knurled jam nuts titanium fasteners nuts bolts tagua nuts carving pecan nut gifts pecan nut gifts avk rivet nuts ibanez nut files ibanez nut files kicked brother in nuts 12 in drive flare nut crowfoot 12 in drive flare nut crowfoot kicked brother in nuts kick nuts titanium fasteners nuts bolts

Nr. 2 | posted by: avk rivet nuts | 31.12.2005 | 8:52:56 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web