www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Stjörf af þreytu
Fimmtudagur, 20. október 2005

Ég er svo þreytt. Ég svaf svo lítið í nótt, heilinn á overdrive að útfæra þessa hugmynd sem fékk einróma samþykki í morgun.

Í hádeginu hittum við frambjóðandann og völdum föt fyrir myndatöku og staðsetningu, skoðuðum dreifibréfs-format og svona hitt og þetta. Eftir vinnu lak ég niður í sófann en varð að lufsast á fætur aftur stuttu síðar og mæta á bekkjarkvöld hjá frumburðinum. Fór í bað áður til að hressa mig við og lét Dodda lesa fyrir mig á meðan ég var í baði. Nýta tímann. Þetta er náttúrlega bilun.

Á morgun brenni ég út úr bænum strax eftir vinnu. Er að fara á Hótel Glym með félagi dauður. Löng saga.

Ég ætla að fara að sofa.

Já og Igor, ekki vera hræddur. Ég er að meina nafnlaust.


| anna | 22:02 |
comments

Já, ætli ég fari bara ekki að sofa snemma líka.

Nr. 1 | posted by: igor | 20.10.2005 | 22:31:46 | [+] |

Verð að safna í mig kjarki.

Nr. 2 | posted by: igor | 20.10.2005 | 22:33:03 | [+] |

Kjarkur er í grænu flöskunni...

Nr. 3 | posted by: Þór | 20.10.2005 | 22:43:47 | [+] |

Innihaldið í þessum glæru virkar oftast best.

Nr. 4 | posted by: AlanHudson | 21.10.2005 | 6:16:34 | [+] |

Takk fyrir ráðleggingarnar strákar.

Nr. 5 | posted by: igor | 21.10.2005 | 7:02:26 | [+] |

Ég fór að ráðum ykkar.

Fékk mér fyrst eina græna og feimnin fór fljótlega halloka - þegar ég var búinn með 2/3 úr flöskunni. Undraverð áhrif. Sannkallað töframeðal. Þegar ég byrjaði á þeirri glæru var feimnin alveg horfin og kjarkurinn farinn að vaxa. Kjarkmælirinn fikraði sig upp súluna í öfugu hlutfalli við yfirborð glæru flöskunnar. Fljótlega var mælirinn kominn upp fyrir miðja súlu.

Það var þá sem ég dó.

Nr. 6 | posted by: igor | 22.10.2005 | 13:06:45 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web