www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Shotgun wedding
Mánudagur, 03. október 2005

Um daginn hitti ég vin minn í gleraugnabúð. Ég og Doddi vorum komin inn í búðina áður en hann kom. Rétt áður. Ég er að tala um 30 sekúntum áður. Ég hafði verið inni í ca 20 sec þegar sölukonan sveif á mig og spurði hvort hún gæti aðstoðað mig. Ég brosti, snéri mér við og horfði út um gluggann. Þetta tók mig ca fimm sec og það tók mig aðrar fimm að segja: "nei, viðfangsefni þitt er þarna". Þegar hún snéri sér í áttina að hurðinni var hann að ganga inn um hana.

Þegar maðurinn in question kom inní búðina fór af stað dínamík sem fer oft af stað þegar hjón fara að versla eitthvað "saman". Konan hélt að við værum par og completely ignoraði hann allan tímann. Hún ræddi hinsvegar við mig um hvernig gleraugun litu út á honum, hvaða litir færu honum vel o.s.frv. - eins og hann væri ekki á staðnum. Inná milli þá spurði ég hann hvað honum fyndist um þau gleraugu sem hann var með á nefninu þá stundina - og það var ekki fyrr en seinna sem hann gat komið orðum að því að þessi upplifun: að missa sjálfið og verða person non grata - var bara too much. Hann var orðlaus.

"Þá veistu hvernig það er að vera giftur. Þú hættir að vera til í verslunum.", sagði ég.

Ok ég laug, auðvitað er þetta allt persónubundið og ef honum hefði ekki brugðið svona mikið, og misst málið, hefði ég kannski ekki dottið inn í "married" rútínuna. Ég bendi aftur á.. að ég reyndi að beina athyglinni að því sem hann vildi. Með hann mállausann.. I had nothing to work with! Konan hélt áfram að selja mér gleraugu, ekki honum.

Er þetta svona? Ef þetta er ekki svona, af hverju er ég þá svona klár í því? Er það vegna þess að ég hef 22 ára reynslu af því að hugsa fyrir karlmann? - Ég var farin að hugsa fyrir pabba þegar ég var tólf ára.

Eftir ca tíu mínútur af "playing along" áttaði ég mig á því að ég var með handsprengju á staðnum. Dodda. Sá fyrir mér hvað það yrði gefandi þegar hann kæmi upp um að við værum ekki par og konan færi að afsaka sig og segja okkur hvað það væri mikill hjónasvipur með okkur. Reyndar sagði hún að við værum bæði "vetur". Ég vissi ekki að ég væri vetur. Hélt ég væri bara köld og fráhrindandi.

En Doddi gerði engar athugasemdir. Doddi hagaði sér nákvæmlega eins og hann væri í þessari búð með foreldrum sínum, alveg sama hversu mikið konan færði sig upp á skaftið með að ákveða hversu intimate við værum.. Doddi haggaðist ekki.

Þá veit ég það. Doddi var greinilega ekki að grínast þegar hann sagði: "ég vil eiga tvo pabba fyrst ég á tvær mömmur" og horfði svo ásakandi á mig, eins og þetta væri bara aumingjaskapur af minni hálfu..


| anna | 11:04 |
comments

Ok svo þú og langi sleði eruð vinir. Skemmtilegur þessi bloggheimur. Maður uppgötvar tengsl fólks á fleiri vegu en utan hans.

Nr. 1 | posted by: Eva | 3.10.2005 | 11:21:36 | [+] |

smile

Nr. 2 | posted by: anna | 3.10.2005 | 12:41:55 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web