Sunnudagur, 23. október 2005
Í dag fór ég að skoða sýningu á munum frá rússnesku keisurunum sem stendur yfir í Gerðarsafninu í Kópavogi. Mjög flott sýning. Ég hefði sérstaklega gaman af því að skoða sniðin á flíkunum sem eru til sýnis en það er líka hægt að skoða fullt af öðrum munum þarna.
Í einum af þessum munum er demantur. Þetta er töluvert stór demantur og ef við gefum okkur að þetta sé ekta gæti einn svona steinn hæglega borgað upp allar mínar skuldir og jafnvel tvær snekkjur, en þar sem ekkert sérstakt þjófavarnardæmi er í kringum þennan demant býst ég frekar við því að þetta sé gler.
Ég er ekki expert on the subject og get ekki séð muninn á demanti og gleri, eða zirconia steini.
Þegar ég kom heim hlustaði ég á Mr and Mrs Smith. Hélt að hún væri betri. Kannski verður maður að horfa til að njóta hennar til fulls.
Eins og venjulega hef ég eytt helginni í að undirbúa næstu tvær vikur. Ég er búin að þvo allan þvott, þrífa íbúðina og bladíbla. Kláraði það í gær.
Það var einhver melancholy-a í mér áðan svo ég fór út og leitaðist við að fá jarðtengingu. Það tókst, en hafði ekki þær afleiðingar í för með sér sem ég vonaðist eftir.
Ég er í no mans land.