Þriðjudagur, 18. október 2005
Ástæðan fyrir því að fólk leiðist út í sælgætisát í staðinn fyrir að borða ávexti er einföld: að borða ávexti er subbulegt og leiðinlegt.
Tökum dæmi.
Dæmi a) Anna mætir til vinnu með prins póló
Dæmi b) Anna mætir til vinnu með appelsínu
Í dæmi a mun Anna taka fram prins pólóið þegar hungrið fer að segja til sín, rífa utan af því umbúðirnar og borða beint úr pakkningunni. Að því loknu má henda umbúðunum í ruslið og sleikja á sér fingurna ef um amatör er að ræða sem kann ekki að borða prins póló án þess að klína sig út í súkkulaði. Ég bendi á að hægt er að fara á námskeið í borðsiðum í flestum Húsmæðraskólum þar sem þetta atriði er einmitt tekið fyrir. Einfalt og þægilegt.
Í dæmi b mun Anna taka fram appelsínuna þegar hungrið fer að segja til sín. Ef vel ætti að vera þarf Anna að hafa eftirfarandi áhöld: skurðarbretti, eldhúsrúllu, hníf og tannþráð. Með þessa hluti við höndina mun appelsínuát Önnu verða töluvert minni þraut en ella. Nú spyr ég: hvað eru margir sem hafa þessa hluti í frakkavasanum?
Þar sem Anna er ekki með fyrrnefnda hluti á sér þarf hún að bora nöglunum í appelsínubörkinn. Við það spýtist e.k. viðbjóðslegur og klístraður appelsínusafi á skjá, lyklaborð, pappíra, gleraugu að ógleymdri peysunni sem Anna er í. Þetta virðist ófrávíkjanleg regla.
Þegar búið er að afhýða appelsínuna þarf aftur að bora nöglunum þarna einhverstaðar til að þvinga í sundur svokallaða appelsínubáta og Anna þarf að passa að fingurnir komi helst ekki nálægt munninum þegar hún stingur þessu upp í sig vegna þess að ef safinn af börknum kemst í samband við munnvatn verður munnurinn stamur og erfitt verður að hreyfa tunguna. Ekki er óalgengt að þegar þú stingur appelsínubát uppí þig leki appelsínusafi niður handlegginn á þér og niður á olboga. Það er alltaf skemmtilegt. Þetta ferli er endurtekið þangað til allir appelsínubátarnir eru búnir.
Nú þegar Anna hefur lokið við að borða appelsínuna er hún í gulslettótum fötum, með skítugan skjá, klístruð blöð á skrifborðinu, klístraða fingur og appelsínukjöt á milli tannanna.
Eins og staðan er í dag eru appelsínur fínar fyrir fólk sem býr uppí tré. Af hverju í fjandanum er engin búin að genabreyta þessum ávöxt þannig að hægt sé að borða hann vandræðalaust?
Óþolandi að standa í svona heilsu rugli.