www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Nornabúðin á Vesturgötu
Laugardagur, 08. október 2005

Vaknaði klukkan átta í morgun. Fékk mér að borða og settist inn í stofu og "hugsaði málið" undir teppi til klukkan ellefu.

Næst hringdi ég í Halldór. Ég lokkaði hann frammúr með því að segjast vera að fara í Ikea, -var auðvitað að ljúga. Ég var að fara í Rúmfatalagerinn að kaupa handklæði mánaðarins. Hægt og rólega er ég að útrýma gömlu handklæðunum mínum sem eru flest frá hjúskapartíð foreldra minna.

Eftir smá kaffihúsabrölt með Halldóri fór ég í Nornabúðina.

Ég fékk mér netluseyði sem var borðin fram með alveg ofboðslega góðu hunangi sem hamingjusamar býflugur í Kanada söfnuðu saman. Þarna sat ég með netluseyðið mitt og bækur um galdra. Á meðan ég las fylgdist ég með viðskiptavinum verslunarinnar með öðru eyranu.

Ég var í búðinni í tæpan klukkutíma, vegna þess að ég tímdi ekki að fara. Ég hef gaman af göldrum og ég hafði gaman af því að hlusta á spurningar viðskiptavinanna og ekki síður svör vingjarnlegu nornarinnar sem var að afgreiða.

Andrúmsloftið í Nornabúðinni er afslappað. Gott að drekka nornaseyði þarna og ef þú vilt vita eitthvað um galdra.. þá skaltu spyrja nornina sem er að afgreiða, hún kann marga mjög magnaða.

Æ ókey.. best ég viðurkenni það bara. Ég var að leika mér með galdrasettið sem ég keypti mér í fyrra og lagði álög á mig. Þetta gerðist fyrir smá tíma síðan og svo klúðraðist það allt saman, notaði vitlausa jurt eða þetta var ekki rétt eðla -held að þetta hafi verið gallað sett, en allavega... ég hef ekki getað náð þessum álögum af mér, búin að reyna allt svo heyrði ég af Nornabúðinni og ákvað að athuga hvort þar væri norn sem gæti losað mig undan þessu klúðri.

Ég varð ekki fyrir vonbrigðum.

Takk fyrir mig!


| anna | 19:13 |
comments

Gaman að fylgjast með hvernig bloggarar hittast hver af öðrum...

Nr. 1 | posted by: klikkun | 8.10.2005 | 19:40:54 | [+] |

Fer þetta ekki að verða spurning um árshátíð? hehe

Nr. 2 | posted by: höfundur | 10.10.2005 | 1:15:23 | [+] |

Ef það á að blása til árshátíðar þá þarf ég að vita það í tíma.
Fyrst þarf ég að koma blogginu mínu upp aftur svo mér verði ekki úthýst og svo tekur það mig náttla á aðra viku að komast til borgarinnar með landpóstinum. Ekki má ég missa af partýinu shy

Nr. 3 | posted by: Harpa | 10.10.2005 | 8:24:56 | [+] |

halló..rakst á síðuna þína og varð heilluð yfir því að þú skrifaðir um nornabúðina. Ég fór einmitt þangað í fyrsta skipti um daginn og var líka í klukkutíma, snilldarstaður .. en ég las líka kommentin. sérdeilis prýðileg hugmynd að halda árshátíð bloggmenningarfólks happy

Nr. 4 | posted by: Hades | 30.10.2005 | 23:17:35 | [+] |

oj... ég fór líka á linkinn þinn "nornin" og það er ég sem er hún er að buna yfir á blogginu sínu...mér finnst þessi búð ekki lengur jafn spes:/

Nr. 5 | posted by: Hades | 30.10.2005 | 23:51:36 | [+] |

jamm toungue

Nr. 6 | posted by: blindur leiðir | 30.04.2006 | 15:06:53 | [+] |

Mikið væri gaman að hitta þig og spjalla saman yfir kaffibolla..
ég er vestan af fjörðum þar sem við nornirnar vorum flestar.. he he..
En sagan segir að 3síðustu nornirnar voru brendar á bænum þar sem ég ólst upp á..
annars er ég nú bara'76model
hvað segiru !?
kveðja Harpa shy

Nr. 7 | posted by: Harpa | 31.10.2007 | 1:13:14 | [+] |

Ég get ekki mælt nógu mikið með Nornabúðinni. Það finna allir eitthvað við sitt hæfi þar.

Gott nornaseyði í boði þar og yndislegt andrúmsloft. Ég fer stundum þangað á laugardögum wink

Nr. 8 | posted by: anna | 31.10.2007 | 16:34:17 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web