www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Kvót vikunnar
Föstudagur, 28. október 2005

Það er ekki óalgengt að menn hringi í mig og segi að þeir þurfi að breyta öllu og að þeir kunni ekki á vefsíðuna okkar. Oftar en ekki bið ég þessa menn að setja sig í stellingar, vegna þess að ég ætli að tala þá í gegnum þessa lífsreynslu.

Þegar ég var næstum alveg búin að tala einn þeirra í gegnum allt heila draslið í gær varð honum að orði:

"vá það er ekkert mál að gera þessar breytingar með þig í símanum, þessi vefur er eins og kona, leikur í höndunum á manni ef maður fær góðar leiðbeiningar!"

Ég er að hugsa um að gefa út handbók með leiðbeiningum um mig og þegar ég finn mann sem kveikir í mér og ef hann er ekki að standa sig get ég sagt: "hérna, read the fucking manual."

Ég gæti skellt í þvottavél, brotið saman af snúrunum, gengið frá inní skápa, tekið eina til tvær háskólagráður og samt náð að horfa á eina seríu af Arrested Development á meðan hann er að kynna sér málið.

hehe


| anna | 14:27 |
comments

blóðmör eða lifrarpilsa?

Nr. 1 | posted by: lifur | 28.10.2005 | 16:12:18 | [+] |

Mér finnst blóðmör betri útá grjónagraut en lifrapylsa betri til almennrar átu. Þegar ég hugsa útí það hef ég aldrei smakkað lifrapylsu útá grjónagraut svo kannski finnst mér hún betri all together - en ég er þekkt fyrir að skipta um skoðun.

Hvar hefurðu verið forboðna lifur lífs míns? Ég hef saknað þín verulega. Það er svo komið að ég hef ákveðið að eignast hund sem heitir Albert - bara vegna þess að þú yfirgafst mig.

Í kvöld mun ég svo norpa úr hræðslu í óveðrinu og hef ekki lifur, lungu eða Albert til að passa mig.

Skelfilegt.

En þú?

Nr. 2 | posted by: anna | 28.10.2005 | 16:15:51 | [+] |

Rétt svar! (Þó lifrarpylsa sé vissulega fallegra nafn á matvæli.)

Hvort myndirðu frekar vilja festast í lítilli lyftu með:
A) Biskupi
B) Umboðsmanni íslenska hestsins
C) Báðum.

Annars hef ég verið á sjó að taka slátur... as you do.

Albert er cool. Nafnið þó flottara en kvikindið. Amma mín elskaði Albert og ég elskaði hana. Hins vegar dýrka ég mömmu þína af frásögn... farið að þróast út í þráhyggju... kannski að ég skipti um "stalky".

Nr. 3 | posted by: lifur | 28.10.2005 | 16:32:05 | [+] |

oj...
af hverju kom sjóveikur blindingi í staðinn fyrir lið B?
Innrás Smælíana er hafin... þeir eru svo sem skárri en Smælingjar og Skrælingjar. Hvað eru aftur Skrælingjar?
Best að fara að raka sig með ostaskera...

Nr. 4 | posted by: lifur | 28.10.2005 | 16:35:09 | [+] |

Já svarið við hinni spurningunni er... djöfull gefurðu manni glataða valkosti. Ef ég væri ekki búin að útiloka Ófeig, vegna þess að ég þekki innsláttarvillurnar hans, gæti ég svarið að þú værir hann! Sem myndi útskýra af hverju ég heillast svona af þér.

Ég get ekki valið biskup því ég er með viðkæman maga og ég get ekki valið umboðsmann íslenska hestsins því ég hef viðkvæm augu. Get ekki valið báða því ég hef viðvæm eyru líka.

Ég vel dauða.

Hvernig fílar þú Hitler? Hvar stendur þú í rasistamálum? Elskar þú peninga meira en nokkuð annað í lífinu?

Segðu mér bara að þú sért rasisti, fasisti, illgjarn, vondur, óhýðinn, hrekkjóttur og.. serious professional og ég verð þín að eilífu.

Já og þú verður að vera orðinn tuttugu og níu, ég fer ekkert neðar en það.

(djöfull veistu hvernig þú átt að velja dagana, ég er alltaf hálf geðveik rétt fyrir fimm á föstudögum. Hef bara ekki geðheilsu í þetta starf)

Nr. 5 | posted by: anna | 28.10.2005 | 16:54:48 | [+] |

Já og jakkaföt eru *algjört skilyrði*, flott skjalataska og mannvonskulegt augnarráð og þú mátt ekki raka þig með ostaskera, ég á reyndar gillette rakvélablöð sem ég keypti í misgripum, ef þig vantar...

Nr. 6 | posted by: anna | 28.10.2005 | 16:57:21 | [+] |

hahahah þetta fannst mér fyndið, þrátt fyrir talsverðan alvarleika!

Nr. 7 | posted by: lifur | 28.10.2005 | 18:28:07 | [+] |

Ég vissi það. Þú ert lifur fyrir mig.

Nr. 8 | posted by: anna | 28.10.2005 | 19:52:19 | [+] |

Þessi hugmynd gefur RTFM alveg nýja merkingu laughing nerd

Nr. 9 | posted by: beggi dot com | 29.10.2005 | 17:16:17 | [+] |

*nákvæmlega* wink nerd

Nr. 10 | posted by: anna | 29.10.2005 | 17:35:08 | [+] |

Arrested Development er gott sjónvarpsefni colgate

Nr. 11 | posted by: - grettir | 31.10.2005 | 11:04:08 | [+] |

Það er snilld!

Nr. 12 | posted by: anna | 31.10.2005 | 11:06:11 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web