Fimmtudagur, 20. október 2005
Update: Þetta er komið, en þið megið alveg kjósa í nýju könnuninni. Ánægð með ykkur. Fyrir klukkan hálf tíu!
--
Mig langar að biðja fólk sem er ekki búið að kjósa á forsíðu að fara þangað og kjósa.
Þegar fimmtíu manns hafa kosið mun ég senda niðurstöðuna til Gallup til greiningar.
Niðurstöður verða svo birtar á næstu dögum.
Talandi um að kjósa..
Í gærkvöldi lauk samningaviðræðum og ég er orðin co kosningastjóri.
Það á eftir að koma í ljós hvort ég hafi leyfi til að tjá mig frekar um þetta mál á síðunni. Líkur eru á að innlegg mitt verði misskilið og skaði frambjóðandann frekar en hitt, enda er ég misskilin. Bæði er ég misskilin og svo skil ég ekkert sjálf, eða misskil það - svo þetta ætti að verða áhugavert.
-Eða skil hlutina vitlaust. Er það að misskilja? Nei, meira.. lesa eitthvað út úr einhverju sem er ekki. Ég túlka hluti rangt. Ég ætti kannski að fá mér túlk?
Ég er ekki ein, hef góðan mann mér við hlið og eins og hann sagði í gærkvöldi: "þar sem við erum með handónýtan frambjóðanda verðum við að taka þetta á lúkkinu". Ég vil nú ekki meina að frambjóðandinn sé handónýtur en ég er alveg til í að taka þetta á lúkkinu líka.
Í gærkvöldi kom líka í ljós að ég er langt frá því að vera góð samningamanneskja. Þetta blasti við þegar ég áttaði mig á því að ég hafði samið um að: a) vera co kosningastjóri fyrir þennan frambjóðanda, b) búa til heimasíðu fyrir hann, c) vinna allskonar leiðindar skítverk fyrir frambjóðandann, d) gera börnin mín út í áróðursdreifingu, e) vinna fyrir *censored* í hans framboði. (bónus viðauki)
Mér skilst að þetta sé allt í sjálfboðavinnu.
Eins og alltaf þegar ég tek mér eitthvað fyrir hendur sem ég veit nákvæmlega ekkert um, fór ég á netið og fann áhugaverðar síður um kosningaherferðir. Nú, hálftíma síðar, lít ég svo á að ég sé fullnuma í þeim fræðum, þó ég muni sjálfsagt læra eitthvað örlítið af kosningamaskínu *censored*.
AAAahhhh *nú* skil ég af hverju ég á að vinna fyrir *censored*!