www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Jude to the rescue
Mánudagur, 17. október 2005

jude_diskur.gif

Það skildi þó aldrei vera!

Eins og komið hefur fram krassaði harði diskurinn minn. Veit ekki hvort ég sagði frá því um daginn þegar ég tók íbúðina í gegn og fór með drasl niður í geymslu - m.a. geisladiska sem ég hef haft hérna út um allt og aldrei nokkurtíma notað.

Ég hef verið að búa til Galdradúkkur um helgina, mökk af þeim, en mig vantar hinsvegar það sem ég er vön að líma aftaná rammann, leiðbeiningar varðandi notkun og þess háttar. Ég átti hinsvegar nokkra ramma sem vantaði bara dúkku á og reddaði þessu þannig. Í bili.

Ég vissi samt að ég þyrfti að fá hitt og mundi þá eftir geisladisk sem ég bað Óla kerfisstjóra að brenna fyrir mig þegar við fengum nýjar vélar í vinnunni. Þetta dót var nefnilega allt á vinnuvélinni minni og ég lét Óla brenna disk sem innihélt allt dót sem var á vinnuvélinni minni en kom vinnunni minni ekki við. Þegar Óli spurði mig hvað diskurinn ætti að heita svaraði ég, eiginlega meira í djóki en hitt: "Jude Law, ekkert nema myndir af honum þarna hvort sem er."

Óli brenndi disk og stuttu síðar fékk ég nýja vél í vinnunni.

Ég var viss um að þetta dót sem mig vantar núna hafi verið þarna, en var þó ekki alveg viss. Ég var að tala við Hörpu vinkonu um þetta og leita að disknum því ég mundi eftir að hafa séð hann einhverstaðar nálægt skrifborðinu mínu um daginn. Um daginn er teygjanlegt hugtak hjá mér. Ég t.d. skildi við manninn minn um daginn, og um daginn sagði Harpa svolítið við mig - þegar það var reyndar í dag. Um daginn er mjög teygjanlegt í mínum huga.

Ef við ætlum að hengja okkur á staðreyndir má teljast nokkuð líklegt að ég hafi séð þennan disk síðast fyrir um það bil þremur mánuðum - semsagt um daginn.

Ég ákvað að fara niður í geymslu og freista þess að finna Jude Law þar. Þetta var svakaleg hættuför og ég fann ekkert. Gróf mig lengra og lengra. og fokk.. ég er að fatta að ég gleymdi að setja fokking stólana aftur inní geymsluna! brb

........................

Vá hvað ég er mikill sveimhugi. Jæja, stólarnir eru komnir inní geymslu.

Á endanum fann ég geisladiskana og fór með þá upp, jújú.. Jude Law var þarna, merktur kyrfilega. Ég stakk honum í vélina og voila! Allt sem ég þurfti var þarna á einum stað. Ég grét.

Æ ég græt ekkert svona mikið, verð að hætta að ljúga þessu..


| anna | 0:00 |
comments

gratúlera smile Alltaf gaman að happy ending sob stories þegar mar þekkir þátttakendur, ertu búin að taka afrit af afriti af aftriti af geisladisknum?

Nr. 1 | posted by: Gunnar | 17.10.2005 | 9:14:24 | [+] |

Ég er búin að taka tvö afrit af þessum disk, þ.e. því sem skiptir máli á honum happy

Nr. 2 | posted by: anna | 17.10.2005 | 9:19:58 | [+] |

Samgleðst.

Nr. 3 | posted by: parisardaman | 17.10.2005 | 11:10:08 | [+] |

og er guð þá til, eða er Jude nóg?... wink

Nr. 4 | posted by: Hildigunnur | 17.10.2005 | 15:42:16 | [+] |

hehehe.. við skulum átta okkur á því að hvað sem gerist er Guð löngu fallinn á tíma. Ég tímamæli allt sem ég geri eftir að ég missti vitið og I'm serious, and I'm a professional.

Jude gat bara skilað mér gögnum sem ég þurfti fyrir galdradúkkurnar. Hann gat t.d. ekki skilað mér frumgögnunum - sem ég þarf að fá líka og er aðeins lítill hluti af þeim 200 GB sem veiki diskurinn heldur í gíslingu uppá borðstofuborði heima hjá mér. Þetta umsátursástand fer að verða frekar þreytandi.

*Ef* ég næ þessu dóti af disknum verður það mér að þakka eða þeim sem hjálpar mér við það.

Þetta mál er orðið Guði óviðkomandi. Hann fékk sitt tækifæri en klúðraði því. Hann hefur gert mér ljóst, á óyggjandi hátt .. að hann er einfaldlega ekki til.

Hann tekur allavega ekki við pöntunum frá mér. Kannski vegna þess að ég er padda. Ég veit það ekki..

Það var hinsvegar viðbúið að Jude myndi gera eitthvað fyrir mig. Maðurinn væri ennþá barþjónn hefði ég ekki uppgötvað hann á fylleríi í verslunarferð í London - um daginn.

Nr. 5 | posted by: anna | 17.10.2005 | 15:54:02 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web