www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Jesus saves
Sunnudagur, 09. október 2005

Í nótt gerðist eitthvað.

Í morgun var óvíst hvort það sem gerðist kom fyrir 120 GB harða diskinn minn eða 250 GB diskinn.

120 GB diskurinn heitir C, 250 GB diskurinn heitir F.

Á C er allt bloggið mitt frá upphafi, eina eintakið sem til er í heiminum.
Á F eru öll önnur gögn. Frá upphafi.

Það hefur nú komið í ljós að ég held blogginu.

Þegar ég fékk þetta á hreint fékk ég líklega það sem fagmenn kalla taugaáfall. Það er reyndar lygi. Ég fékk ekkert taugaáfall. Ég hallaði mér aftur í stólnum og brosti. Já, hugsaði ég með sjálfri mér, þetta er magnað. Hvað á ég nú að gera? Annaðhvort er hægt að ná í þessi gögn - eða ekki. Líkurnar á "ekki" eru yfirgnæfandi. Ég gæti prufað að fara að gráta en ég veit að það leysir ekkert. Ég gæti prufað að verða mér út um vopn og ganga berseksgang í Tölvulistanum, sér í lagi vegna þess að þetta er annar 250 GB diskurinn frá þeim sem krassar á innan við hálfu ári. Þessir aumingjans menn eru bara ekki þess virði.

Það sem er á þessum disk eru allar digital myndir sem ég hef tekið frá því ég fékk vélina mína. Öll myndvinnsla, sama hvað það er - frá upphafi. Allt sem ég hef skrifað, öll verkefni, gamall póstur.

Allt.

Staðreyndin sem blasir við er að það er ekkert sem ég get gert í rauninni. Jú, á eftir ætlar Hugi að kanna hvort hægt sé að lesa þetta í makka en líkurnar eru ekki miklar og ég bind ekki miklar vonir við að það virki.

Þetta er farið.

Þegar ég var búin að ná utanum það fór ég að hugsa. Já.. kannski var það bara ágætt. Það var nefnilega fullt af dóti þarna sem ég ætti að vera búin að eyða út, en hef ekki gert vegna þess að ég er haldin kvalarlosta. Nú er það farið. Horfið. Bygons.

Þær myndir sem skipta einhverju máli eru á myndaservernum, svo ég hef ekki miklar áhyggjur af því. Ég sé eftir myndvinnslunni minni. Allt varðandi galdradúkkurnar mínar er horfið. Allt varðandi allt sem ég hef unnið að er horfið.

Þessi færsla mun ekki enda á orðunum "hjúkk að ég átti afrit". Ég á ekki afrit svo ég get sjálfri mér um kennt. Jújú, ég á eitthvað af þessu brennt á diska hér og þar, vissulega. En ekki nærri allt. En þarf ég allt? Ég spurði mig að þessari spurningu og svarið við henni er: nei, ég þarf ekki allt. Ég kem til með að lifa þetta af, augljóslega. Spurningin er: ætla ég að blúsa yfir þessu vikum saman eða ætla ég að sætta mig við þetta núna og byrja uppá nýtt. - Þegar Tölvulistamennirnir hafa bætt mér diskinn. Ég verð reyndar að viðurkenna að mig langar ekkert rosalega mikið að fá western digital disk aftur, I wonder why.

Þegar hingað var komið við sögu varð ég að drífa mig út, átti stefnumót við konu á kaffihúsi. Fyndið, Júlía hringdi í gær, ætlaði að koma til mín í dag en ég sagði henni að ég væri að fara að hitta konu á kaffihúsi um miðjan dag svo það yrði að vera fyrir eða eftir. Þá spurði hún "Anna.. ertu orðin lesbía?" Þegar ég var búin að ná mér úr hlátri spurði ég á móti: "Júlía.. finnst þér það líklegt?" og þá fór Júlía að hlæja.

Ég fór í ó-lesbískum erindagjörðum að hitta konu á kaffihúsi í dag sem var ágætt því ég náði að gleyma harða disknum sem ég var með í töskunni og öllu sem á honum er/var.

Ég er ekki stúbid. Ég veit að líkurnar á því að ég nái í það sem var á disknum eru á bilinu slim to none. Þetta er svipað og þegar einhver er búinn að vera dáinn svo lengi að heilaskaði er orðin óhjákvæmilegur en samt halda læknar áfram að endurlífga - eins og þeir trúi á kraftaverk.

Sem er einmitt ástæðan fyrir því að ég er að fara með diskinn til Huga á eftir. Að gefa því ekki séns er stúbid, því þótt líkurnar séu litlar þá eru þær til staðar.

En basically veit ég að þetta er farið svo af einskærum kvikindisskap og illgirni þá legg ég þetta, hér með, í hendurnar á Guði. Ef ég fæ gögnin mín aftur lít ég svo á að hann hafi sannað tilvist sína. Ef ekki..


| anna | 19:02 |
comments

hann Þór vinur þinn bjargaði fyrir mig öllum gögnunum á harða diskinum mínum þegar hann fór. Veit náttúrlega ekki hvað þinn fékk að erfiða áður en hann gafst alveg upp, en það er samt alveg magnað hvað er hægt að gera. Ef maður leggur í kostnaðinn (Þór var ekkert svo dýr, en ef ég hefði þurft að senda diskinn út hefði ég mátt blæða vel).

Best að brenna myndirnar mínar snöggvast á diska, samt...

Nr. 1 | posted by: hildigunnur | 9.10.2005 | 22:41:13 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web