Ég er að leka niður úr þreytu, búin að vinna í allt kvöld.
Svona er Reykjavík í dag:
Ég ætla að fara að sofa.
Fyrsta samtal dagsins.
Sonurinn kemur nývaknaður fram og ég sit í eldhúsinu að drekka kaffi og lesa blöðin.
Igor: Sérðu snjóinn?
Sonur: Hmmm. Ætli þetta sé góður snjór?
Igor: Nei, örugglega þurr.
Sonur: Hann er örugglega ágætur á bílaplaninu?
Igor: Já því það er upphitað sem bræðir aðeins snjóinn og gerir hann betri.
Sonur: Já
framhald.
Sonur: BT blaðið segir að skjáir endast bara í 30.000 klst.
Igor: Ég gæti alveg trúað því.
Sonur: Eigum við að fara í BT og kaupa leik í PSP því mér gekk svo vel í stærðfræðiprófinu.
Igor: Mát