Föstudagur, 28. október 2005
Í hádeginu hitti ég mann útí bæ og hann kynnti mig fyrir Lísu. -Sem er mögnuð. Fæ vonandi að vinna með henni bráðlega.
Ég fékk hugmynd þegar ég lá uppí rúmi í gærkvöldi að hugsa um Albert. Ég hef ákveðið að execute-a þessa hugmynd og næ vonandi að gera það um helgina. Til að ég geti það.. þarf ég að keyra börnin mín áfram í vinnu. Þau þurfa að teikna margar, margar myndir fyrir mig.
Ég er svo skemmtileg mamma. Ég gef þeim kannski eins og eina súkkulaðihjúpaða rúsínu í staðin, en bara ef þau gera þetta með bros á vör og þakka mér fyrir.
Þau vita ekki hvað þau hafa það gott, ég er að hugsa um að kaupa ferð í Nike verksmiðjurnar og sýna þeim hvað gæti beðið þeirra ef þau haga sér ekki og ef Albert verður óþekkur fer ég með hann á veitingastað í Kína! Það ætti að lækka í honum rostann og auk þess hefur mig alltaf langað að koma til Kína.
Muna að kaupa tannstöngla.
Ég er ennþá undir áhrifum frá Lísu. Þeir segja að first impression skipti öllu máli. They weren't kidding.