Fimmtudagur, 20. október 2005
Þegar ég var lítil dreymdi mig um að hafa sítt hár en óbermið hún mamma lét klippa mig stutt - eða eins og á Anna og Teddy bear myndinni. Ég mátti ekki hafa síðara hár.
Var að lesa Júlíu systur um daginn og hún segist hafa hár niður á brjóst. Ég fór náttúrlega og tékkaði á mér og komst að því að það fer alveg eftir því hvort ég er í brjóstahaldara eða ekki hvort ég er með brjóstasítt hár.
Bygons.
Ég er komin með svakalega sítt hár. Held ég hafi aldrei verið svona áður og þegar ég lít í spegil á morgnanna bregður mér stundum. Ég ætlaði ekkert að safna svona miklu hári. Það gerðist óvart og aðallega vegna þess að í þrjú síðustu skipti sem ég hef pantað tíma í klippingu þarf ég að fara með einhvern á slysavarðstofuna eða til sérfróðs læknis svo klippingin hrapar niður á forgangslistanum. Ég spái því að ég muni fara næst í klippingu rétt fyrir jólin. Ég ætti kannski að panta mér tíma núna?
Þetta er bullshit. Fokk
Ég ætlaði að skrifa þangað til ég fengi hugmynd sem virkar. Breinstorma. Lá í baði áðan og reyndi að breinstorma en ekkert gerðist. Mig vantar hugmynd fyrir ákveðið dæmi og ég fæ enga hugmynd. Allt sem mér dettur í hug er of langsótt og loðið og leiðinlegt eitthvað.
Kannski er bara ekkert skemmtilegt við *censored*. Nei andskotinn! Það hlýtur að vera! Ég er reyndar með backup hugmynd sem ég fékk í fyrra sem myndi ganga núna ef mér dettur ekkert skárra í hug. Þetta hefur bara aldrei komið fyrir mig áður. Ég hef haft ár til að hugsa eitthvað upp og venjulega bara gerist það af sjálfu sér. Ég fæ hugljómun á meðan ég er að skúra eða lakka á mér neglurnar eða þurrka á mér hárið eða elda eða eitthvað og voila! Málið er leyst.
En það er ekki að gerast núna. en fangelsi? já.. búnir að sitja lengi inni..... EUREKA! ÉG ER KOMIN MEÐ ÞAÐ!!!
Hringi í Brian á morgun. Ég er fokking snillingur.