www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
anna.is lýsir eftir manni..
Mánudagur, 10. október 2005

Í kvöld heimsótti ég konu sem er göldrótt.

Í kjölfarið lýsi ég eftir manni. Ég veit ekki hvernig þessi maður lítur út en þetta er maður með þónokkur völd, fjáður, ekki elskhugi minn, ekki skyldur mér en veit af mér, vill mér vel og mun reynast mér vel.

Vinsamlega gefðu þig fram.

--

Hvað harða diskinn varðar, þá veit ég ekki ennþá hvort Guð er til, en mun láta vita um leið og það kemur í ljós.

Menn á vegum Kaþólsku kirkjunnar höfðu samband áðan og gáfu mér upp beina númerið hjá Páfa, enda liggur hann víst andvaka af spennu yfir því hvernig fer - sem og allur Páfagarður. Vona bara að karlgreyið óverdósi ekki á kaffi og sígarettum. Símanúmerið hans er komið í gsm símann minn undir nafninu "Johnny boy". Setti hann í grúppu sem heitir "karlmenn-týpa 4", hringitónn þessarar grúppu er lagið "Loser" með BECK.

Ég setti víst sunnudags-náttfatapartíið í algjört uppnám þegar ég skoraði Guð og alla englana á hólm áðan, margir sem lesa mig þarna, og skilst að þeir hafi hreinlega aflýst "hver er undir kuflinum" í kvöld, menn voru í svo miklu uppnámi. Við skulum átta okkur á því að "hver er undir kuflinum" hefur aldrei verið frestað áður ekki einu sinni þegar páfi liggur fyrir dauðanum. -Enda myndu þeir líka aldrei spila ef þeir ætluðu að fresta þá..

Breskir veðbankar eru svartsýnir á að ég muni ná þessum gögnum, er það mat óháð því hvort Guð er til eða ekki.


| anna | 0:25 |
comments

Guð er til. Ég komst að því í haust.

Nr. 1 | posted by: AlanHudson | 10.10.2005 | 5:11:05 | [+] |

Ég trúi ekki á Guð, en ég trúi á Þór.

Nr. 2 | posted by: DonPedro | 10.10.2005 | 9:01:42 | [+] |

Alan: Hvað gerðist?

DonPedro: Þór var reyndar sá fyrsti sem ég hringdi í...

Nr. 3 | posted by: anna | 10.10.2005 | 9:12:41 | [+] |

Don: Right on dude laughing

Anna: Spurning um að reyna þetta ?

http://www.prosofteng.com/products/data_rescue_pc.php

Nr. 4 | posted by: Þór | 10.10.2005 | 9:57:53 | [+] |

Ég sé að þú ert að lýsa eftir mér?

Annars hélt ég að ég væri búinn að segja þér að guð er ekki til. Hann er hugmynd en ekki veruleiki. Góð hugmynd samt.

Nr. 5 | posted by: igor | 10.10.2005 | 23:31:55 | [+] |

Var bara að tékka á hvort þetta værir þú Igor. Gott að vita af þér. Ég gæti þurft að leita til þín á næstunni, þarf ráðleggingar.

Maggi, ég get bætt nýjum disk á fjárhagsáætlunina fyrir næsta mánuð, á vél sem ég gæti notað í þetta verk. Ég má kannski hafa samband við þig ef mér finnst þetta vera mér ofviða?

Nr. 6 | posted by: anna | 11.10.2005 | 12:32:21 | [+] |

Coolness cool

Nr. 7 | posted by: anna | 11.10.2005 | 21:19:39 | [+] |

Alltaf velkomin.

Nr. 8 | posted by: igor | 11.10.2005 | 23:17:35 | [+] |

Takk. smile

Nr. 9 | posted by: anna | 11.10.2005 | 23:19:21 | [+] |

Léstu spá fyrir þér ?

Nr. 10 | posted by: klikkun | 12.10.2005 | 18:49:11 | [+] |

Augljóslega. Og þessi maður dómínerar allt!

Nr. 11 | posted by: anna | 12.10.2005 | 21:25:14 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web