www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Will work for food?
Þriðjudagur, 20. september 2005

Ég hef náð að láta enda ná saman í heimilisútgjöldunum á undraverðann hátt undanfarið en núna er ég broke og mánuðurinn ekki nærri búinn.

Ég hef sett saman einfalda jöfnu sem útskýrir vandamálið:

venjuleg útgjöld + (afmæli + tómstundir barna ) > f (fyrirvinna1)

Mér fer svo fram í stærðfræði þessa dagana, enda alltaf að hjálpa Dodda við heimalærdóminn.

Ég borga hádegismat fyrir bæði börnin í skólanum. Það minnkar ráðstöfunartekjur mínar nokkuð svo ég hef tekið upp þá stefnu að hafa ekki "alvöru" mat á kvöldin nema um helgar. Það er "snarl" í matinn öll kvöld og einmitt í gær kenndi ég Dodda að þótt brauð sé orðið smá myglað þá má alltaf rista það. Maður verður líka sjaldnar veikur ef maður er duglegur að borða myglað brauð. Þetta vita allir sem voru í heimilisfræði hjá Auðbjörgu.

Ég borða sumsé ekkert nema myglað snarl á kvöldin, sem væri allt í lagi ef ég lifði ekki á hrökkbrauði yfir daginn. Já, þurru hrökkbrauði úr Bónus án gers og sykurs. Ef maður er það sem maður borðar - er ég myglað hrökkbrauð!

Vá, það var miklu skárra í tíð skyndibitadaganna og nammis þegar ég var sæt, fast, cheap and easy!

Af því ég borða lítið sem ekkert er ég byrjuð að léttast aftur svo ég er hætt að fara í líkamsrækt. Bæði geri ég mér grein fyrir því að ég hef engar umfram hitaeiningar til að brenna, því síður efnivið til að byggja upp vöðva og á meðan bensínverðið er eins og það er.. hef ég ekki einu sinni efni á að fara í líkamsrækt.

Minnir mig á: Nei mamma, ég kem ekki í heimsókn í Kópavoginn fyrr en í fyrsta lagi 1. október.

Ég er reyndar farin að hafa áhyggjur af þessu. Mig langar ekki að líta út eins og beinagrind auk þess sem ég hef alls ekki efni á að kaupa mér sífellt minni föt. Ég tók upp á að kaupa crisco feiti og borða uppúr dósinni þegar ég horfi á sjónvarpið. Sem betur fer horfi ég mjög sjaldan á sjónvarpið.

Um daginn hitti ég svo mann sem ég kannast aðeins við og einhverra hluta vegna barst þetta blankheitadæmi mitt í tal og ég sagði við hann "will work for food" og hann hló - enda var ég að grínast - nema rétt áðan hringdi hann og bauð mér heim til sín í mat í kvöld.

Nú sé ég eftir að hafa sagt þetta við hann. Ég veit ekkert hvað hann vill fá frá mér í staðinn en mig grunar hvað það er. Hann ætti að gera sér grein fyrir því að ef ég ætlaði út í vændi á annað borð.. þá myndi ég ekki gera það nema fyrir cold hard cash.

Á meðan ég hef efni á hrökkbrauði, I will not work for food!


| anna | 15:49 |
comments

Maður sem fær ekki gott kynlíf fyrir matseld er einfaldlega ekki nógu góður kokkur, eða hefur sett matseðilinn vitlaust saman.

Ef hann skellir bjúgum á borðið og horfir svo á þig girndaraugum, þarf hann að endurskoða helling, og þú ættir að koma þér heim.

Nr. 1 | posted by: DonPedro | 21.09.2005 | 20:56:14 | [+] |

Fyrir matseld? hmmm.. hélt það kæmi á eftir.

Annars er þetta haugalygi, maturinn var í kvöld. Hann eldaði alveg einstaklega ljúffengan mat og fékk ekkert nema.. ja hvað fékk hann í staðinn? Hann hló allavega mikið, held að honum hafi ekki leiðst neitt.

Fer aftur á föstudaginn, í kjól.

Nr. 2 | posted by: anna | 21.09.2005 | 21:58:16 | [+] |

Fyrir mateldina sína. Kynlíf fyrir neyslu vel lagaðrar máltíðar er ekki málið. Góð máltíð er hluti af forleik. Nema maður sjóði bjúgu.

Nr. 3 | posted by: DonPedro | 22.09.2005 | 9:35:46 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web