Laugardagur, 10. september 2005
Hvað veldur því að ung kona eyðir föstudagskvöldi ein heima hjá sér að þrífa vorhreingerningu í byrjun september? Til klukkan eitt um nóttina. Frá því klukkan fjögur um daginn.
Jú.. annaðhvort er hún að fresta einhverju sem hún nennir ekki að gera.. eða.. fávitasegullinn er kominn í gang.
Ef við gefum okkur að það sé ekkert á jörðinni leiðinlegra en að sótthreinsa baðherbergið þannig að það lyktar eins og sundlaug, fara í gegnum nærbuxnaskúffuna og henda öllu sem er mildly sjúskað, skúra undir rúmi, undir sófa, undir öllum húsgögnum í íbúðinni, þrífa skápana í eldhúsinu, ofninn, ísskápinn.. má leiða að því líkum að fávitasegullinn sé kominn í gang. Sem þýðir að líklega á hún á von á heimsókn seinnipartinn á morgun, annars myndi hún ekki hafa morgundaginn til þess að plokka það sem þarf að plokka, raka, baða sig í lósjoni o.s.frv.
Ef við gefum okkur að það taki ca fimm klukkutíma, hefur hún nógan tíma til að fara til Keflavíkur og sækja..