www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
sex and the city á fimmtudegi
Fimmtudagur, 22. september 2005

Mr. Big er farin til París, Carrie er búin að átta sig á því að hún er í sadó masó sambandi með honum (ring a bell?) og ég ýtti á pásu þegar hún fór að hitta "hinn" manninn í lífi sínu.

Ég ýtti á pásu.. vegna þess að ég fór að velta fyrir mér hversu marga "hina menn" kona má eiga. Hélt að ég ætti kannski of marga.

Þegar ég fór að brjóta þetta niður komst ég að því að ég á líka raunverulega bara einn "hinn mann", og það er..

..já það ert þú Halldór. Þú ert "hinn" maðurinn. Eina vandamálið er.. að Halldór er ekki gay eins og Stanford, "hinn" maðurinn hennar Carrie. Halldór þolir mig hinsvegar takmarkað svo það er í lagi.

Við eigum í ást/haturs sambandi en alveg án sadó masó. Við þekkjum hvort annað nefnilega nógu vel til að skilja brandarana, taka ekki nærri okkur þegar annað kallar hitt.. druslu, vegna þess að yfirleytt er það eftir að hitt hefur sagt eitthvað.. eitthvað svo.. obnoxious .. að þú myndi bara segja það við besta vin þinn. Við niðurlægjum ekki hvort annað og leyfum hinu að halda virðingunni at low points. Það er einfaldlega það sem vinir gera.

Um daginn hringdi ég í Halldór og sagði:

"hvað heldurðu að mamma hafi sagt við mig í dag?"
Halldór: "hún sagði þér að giftast mér"
(hvernig gat hann vita þetta!)
Anna: "já!"

þögn

Halldór: "Segðu mér, hvað hef ég gert henni mömmu þinni til að eiga þetta skilið? Ég hef alltaf reynt að koma almennilega fram við hana!"

Annað símtal:

Anna: "Hvar ertu?"
Halldór: "Að koma heim, var úti að labba með regnhlífinni minni"
Anna: "er rigning?"
Halldór: "nei en ég er að prufa að fara út í regnhlífar. Miklu minni fyrirhöfn og þær skilja ekki eftir drasl inná baði hjá manni.
- Nei dj..! Hún er farin! Og tók bílinn!"
Anna: deyr úr hlátri "ég trúi þér ekki!"
Halldór: "Fyrstu tvær regnhlífarnar frömdu sjálfsmorð, ætli það sé ég?"
Anna: "báðar?"
Halldór: "þetta sögðu þeir hjá lögreglunni líka, seinna sjálfsmorðið var meðhöndlað sem sakamál"

Ég vona að ég eignist einn daginn mann sem höndlar að ég eigi "hinn" manninn minn líka. Ég get ekki hugsað mér lífið án hans.

Fyrir utan þegar ég kom Dodda í skólan í morgun, þá er þetta að verða alveg dásamlegur frídagur. Ekkert eins viðeigandi og að vera í sumarfríi fyrsta frostmorgun haustsins.

Að lokum.. þegar ég birti samtöl orðrétt á ég það til að fá samþykki áður en ég birti þau. Svo ég hringdi í Halldór klukkan rúmlega tólf:

Anna: "hæ, ég var að horfa á sex and the city og Carrie var að hitta Stanford, sem er "hinn" maðurinn í lífi hennar og ég ýtti á pásu og fór að velta fyrir mér hvort ég ætti of marga "hina" menn í lífi mínu þegar ég áttaði mig á að ég á bara einn. Og það ert þú! Þú ert hinn maðurinn í lífi mínu."
Halldór: (nývaknaður) "minntu mig á að skipta um símanúmer"
Anna: "og ég var að spá í hvort ég mætti birta á síðunni símtalið þegar mamma sagði að ég ætti að giftast þér og þetta með regnhlífarnar"
Halldór: "já"
Anna: "Talaði við Eddu og hún sagði mér að ég væri bara ófullnægð, ég ætti að slökkva og fara í heitt bað með kertum og leika mér aðeins með sturtuhausinn".
Halldór: "lélegt samband, heyri ekki í þér.."
Anna: "svo ég lét renna í bað.."
Halldór: "og tókst svo sturtuhausinn fram í stofu og lékst þér aðeins með hann, fyrst var hann vörubíll..."
Anna: "nei, frumburðurinn kom heim í tvöfaldan mat, so I resumed my position in front of the tv"
Halldór: "dugleg"
Anna: "Já! Ertu nývaknaður?"
Halldór: "já"
Anna: "ætlarðu að fara að sofa aftur?"
Halldór: "já.. ég held það bara"
Anna: "ókey darling, góða nótt"
Halldór: "góða nótt illskan mín"


| anna | 12:04 |
comments
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web