Föstudagur, 23. september 2005
1. Ég á þrettán ára dóttur. Í hvert einasta skipti sem hún fer út úr húsi segi ég "passaðu þig á bílunum". Síðustu ár er hún farin að brosa þegar ég segi þetta.
Þetta eru leifar frá föðurömmu minni. Hún sagði þetta alltaf við mig ef ég var að fara út og þegar ég varð eldri þoldi ég þetta ekki, fannst eins og hún hefði enga trú á mér. Það var ekki fyrr en ég eignaðist börn sjálf - og amma var dáin - að ég áttaði mig á því að hún sagði þetta vegna þess að henni þótti svo undur vænt um mig.
2. Ég hef tösku fetish.
Sumar konur eiga aldrei nóg af skóm, ég elska hinsvegar töskur og sé ekki fram á að ég geti nokkurtíma átt of mikið af þeim.
Það tók mig mjög mörg ár að venja mig á að nota töskur því ég er nefnilega - at heart - "vasa" manneskja.
Líklega tengi ég töskur við dömur og mig hefur alltaf langað, innst inni, að vera dama. Í þau skipti sem ég hef brotið niður af alvöru hvað það þýðir - að vera dama - hættir mig að langa það. Það má því segja að ég noti töskur til að líta út fyrir að vera eitthvað sem mig raunverulega langar ekki til að vera!
3. Ég hafði gaman af því að gera við bíla.
Eftir því sem árin hafa færst yfir mig hef ég misst áhugann á bílaviðgerðum. Í staðinn hef ég þróað með mér gríðarlegann áhuga á karlmönnum sem kunna að gera við bíla. Mér finnst það alveg óhugnarlega kynæsandi eiginleiki. Og karlmenn sem kunna að smíða og laga og..
Það er samt ekkert að marka. Ég myndi líklega bara sitja og njóta þess að horfa á manninn sem gerir við bílinn sinn og fara svo heim til mannsins sem á ekki druslu sem þarf sínkt og heilagt að vera að gera við - og nudda á honum axlirnar. Eða eitthvað..
4. Mér fannst kvenlíkaminn miklu fallegri en karllíkaminn.
Aftur, eftir því sem árin færast yfir mig hefur þetta breyst. Í sumar stóð ég mig að því - ítrekað - að vera næstum búin að keyra útaf þegar ég sá karlmann beran að ofan að vinna einhverstaðar. Þetta er alveg ný tilfinning og skýringuna gæti verið að finna í karlmannsskorti hjá mér. Kannski er skortur ekki rétta orðið. Það hefur sýnt sig að ég þyrfti ekki að vera ein ef ég hefði ekki áhuga á því. Ég er hinsvegar líka búin að missa alla trú á karlkyninu og hlakka til þegar ég hitti þann mann sem getur vakið trú mína á því aftur.
Ég hef hinsvegar ekki trú á því að hann sé til.
Ég er ekki ennþá komin á það stig að hafa gaman af fjöldapóstum sem innihalda myndir af berum karlmönnum, enda allar vinkonur mínar löngu hættar að senda mér svoleiðis. Mér finnst ekki fallegt þegar menn eru "hel-massaðir", mér finnst það eiginlega hlægilegt. Ég vil mjúkann mann, ekki "mjúka manninn", hef ekkert við svoleiðis geðluðru að gera.
5. Ég elska litlar minnisbækur.
Ég á líklega hátt í fimmtíu litlar minnisbækur sem ég hef keypt vegna þess að..
Ég hef ekki hugmynd um af hverju ég kaupi þær. Yfirleitt enda þær í geymslunni með engu innihaldi. Uppáhalds minnisbækurnar mínar í dag eru moleskine bækurnar. Mér finnst þær æðislegar. Ef þetta ættu að vera sex atriði gæti ég sagt frá því að ég hef of dýran smekk fyrir minn fjárhag svo ég á bara eina. Keypti mér litla bók með auðum síðum sem ég skrifa hugmyndirnar mínar í.
Þetta er actually fyrsta minnisbókin sem ég nota af viti. Ég vona svo sannarlega að ég gleymi henni aldrei neinstaðar. Hún inniheldur nefnilega sirka bát 100 atriði um mig.. sem ég kæri mig ekki um að annað fólk viti.
hehehe
Mér sýnist lenska að klukka aðra bloggara svo ég ætla að klukka eftirfarandi fólk: Hörpu vinkonu mína. Hún er hætt að blogga en þar sem ég hef inside information veit ég að hún kemur til með að mæta aftur á svæðið þegar hún er búin í boot camp. Ekkert grín lífið í sveitinni. Þar sem ég er frek og yfirgangssöm ætlast ég til þess að þessi fimm tilgangslausu atriði um hana verði eitt af hennar fyrstu verkum þegar hún meikar kombakk.
Hinir sem ég klukka eru:
Systir mín
Bitringur
Langi Sleði