www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Kanelsnúðar
Mánudagur, 26. september 2005

Í kvöld ætla ég að baka kanelsnúða. Það eru tvær ástæður fyrir því að ég ætla að vaða svona inn á verksvið bakarameistara.

Ástæða 1: Þegar börnin eru í íþróttum koma þau svöng heim og éta mig útá gaddinn. Kanelsnúðar eru hollir og góðir (víst!) og þau verða minna svöng ef ég get gefið þeim svoleiðis eftir sund/karate og þá get ég haldið áfram að fóðra þau á snarli á kvöldin án þess að fá mikið samviskubit þangað til hagur strympu vænkast – um mánaðarmótin.

Ástæða 2: Frumburðurinn varð óvart þess valdandi að það rifjaðist upp fyrir mér hvað mér finnast kanelsnúðar góðir. Hún segir eiginlega betur frá þessu en ég..

Note to self: muna að kaupa mjólk á leiðinni heim..


| anna | 14:44 |
comments

Jóhanna er greinilega fínn penni eins og mamman smile

Nr. 1 | posted by: Sigga | 27.09.2005 | 10:36:29 | [+] |

Ég er mjög stolt af henni. Finnst hún frábær. smile

Nr. 2 | posted by: anna | 27.09.2005 | 14:23:50 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web