www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Jack
Miðvikudagur, 28. september 2005

163_6388.gifÍ gær skrapp ég í smá heimsókn til Huga á neðri hæðinni. Vorum að ræða praktísk vef málefni og verðlaunaafhendingar.

Hugi sagði mér að stundum líði honum eins og hann þekki Jack Nicholson eða eitthvað þegar fólk kemst að því að þessi anna.is býr fyrir ofan hann, sem er soldið fyndið því stuttu síðar hringdi dyrabjallan og Hugi fór til dyra. Um leið og ég heyrði röddina spratt ég á fætur, því ég hafði steingleymt að Jack væri að koma í gærkvöldi. Þessvegna fór ég pínu seint að sofa.

Takk fyrir að senda mér myndina Hugi!

Við Jack, við eigum sögu. Það var hann sem bað mig upprunalega að hafa movie hall of fame spurninguna, því hann er sjálfhverfari en ég - ef það er hægt - og fannst skemmtilegt að svara spurningum um myndir sem hann leikur í sjálfur. Það eru nokkrar ástæður fyrir því að ég er farin að deita Jack aftur. Í fyrsta lagi til að sýna mömmu fram á að þetta er ekki rétt hjá henni, ég geri ekki of miklar útlitslegar kröfur til karlmanna og í öðru lagi - vegna þess að maðurinn er kynóður.

Það eru bestu samböndin. Þegar allir græða. Meira að segja hússjóðurinn græðir lendingargjöld því Jack notar þyrlupallinn uppá þaki.


| anna | 12:42 |
comments

Ekki vissi ég að Jack væri svona hávaxinn colgate Er hann sem sé góður til síns brúks? evil

Nr. 1 | posted by: Sigga | 28.09.2005 | 13:11:22 | [+] |

Ég sagði aldrei að hann væri góður. Óður.. var orðið sem ég notaði, kynóður.

Hann er allt of hávaxinn maðurinn. Annaðhvort það, eða ég er dvergur - sem ég er. Annars er þetta sárasaklaust, við spilum bara lúdó. embarassed

Nr. 2 | posted by: anna | 28.09.2005 | 13:30:26 | [+] |

Láttu nú ekki svona. Jack er engin Stefán, það sér hver heilvita manneskja. (Ertu að auglýsa fyrir hann?) Ég stunda heldur ekki tilviljunarkennt kynlíf. Veit nákvæmlega hvað ég vil, frá hverjum og hvenær. Ekkert random about it.

Áttu lúdó og stefán grúppíur? Voru þeir ekki vinsælir áður en bj var fundið upp?

Finnst þér ég hefði átt að halda áfram að stía Sienna og Jude í sundur frekar en að hóa í Jack? Það dæmi er að spila sig gjörsamlega upp í hendurnar á mér. Sambandið endist ekkert með allar þessar fáránlegu kröfur sem konan gerir.

Blasir við.

Nr. 3 | posted by: anna | 28.09.2005 | 17:15:23 | [+] |

laughing
Jack er góður gæi, hann smíðaði innréttingarnar í eldhúsinu hjá mér.

Nr. 4 | posted by: Hugi | 28.09.2005 | 17:33:40 | [+] |

Hann er snillingur.

Nr. 5 | posted by: anna | 28.09.2005 | 18:02:12 | [+] |

Hvað hefur Jack sem Hugi hefur ekki? Ekkert. Maðurinn er asni, og svindlar í lúdó!

Það er yfirlýst stefna mín að neimdroppa ekki á síðunni minni. Ég segi t.d. aldrei "Jack, sem leikur í bladíbla, kom í heimsókn" eða "Jude, breskur leikari best þekktur fyrir frammistöðu sína í bladíbla" eða "Colin Powell, bandarískur stjórnmálamaður, sem bladíbla" eða "Hugi, forsprakki Smaladrengjanna býr í íbúðinni fyrir neðan mig" eða "Don Pedro, kvikmyndagerðarmaður, kommentar hjá mér"

Í staðinn gæti ég mögulega skrifað setningu sem er svona: "Á meðan Jack bölvaði Powell (er ekki á first name terms við manninn - ennþá) fyrir að rústa sér í lúdói lá Jude dauður í sófanum á meðan Hugi spilaði Mozart á flygilinn í stofunni. Það var nú ljóta martröðin að koma þessum flygli upp stigana. Ef þið trúið mér ekki þá náði Don Pedro því á filmu."

Ég held að eina skiptið sem ég hafi neimdroppað "almennilega" hafi verið þegar ég hitti Nönnu og Auði Haralds en það var bara vegna þess að ég talaði við þær. Í mínum huga er neimdropp ekki neimdropp nema maður gefi upp frægði viðkomandi í leiðinni.

Ég hef nefnilega fordóma gegn fólki sem neimdroppar.

hehehe

Nr. 6 | posted by: anna | 28.09.2005 | 19:32:31 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web