Miðvikudagur, 28. september 2005
Anna: "Mig langar í kærasta, ég vildi óska að ég ætti kærasta"
Vinkona "Já. Ég vildi líka óska þess að þú ættir kærasta, og kærasta sem er almennilegur og góður við þig"
Anna: "Já"
Vinkona: "Oh hann var svo sætur við mig áðan, var næstum búin að segja þér hvað hann sagði en svo hugsaði ég: "Ég get ekki gert henni það, stelpustráinu"
Anna: "DJÖFULL ERTU ÖMURLEG! STELPUSTRÁINU! Ég ætla að blogga um þetta. -SVO ÉG GLEYMI ÞVÍ ALDREI HVAÐ ÞÚ ERT VOND VIÐ MIG!"
Eftir að ég hafði skellt á, áttaði ég mig á því að ég hef gríðarlega fordóma gegn stelpum sem eignast kærasta sem eru góðir við þær.
Gæti samt verið að ég sé að rugla saman fordómum við öfund.
Þarf eiginlega að fá ruling on this.