Mánudagur, 12. september 2005
Mamma: "af hverju kemurðu ekki með þennan Djödd í kaffi einhvertíma?"
Anna: "Djúd"
Mamma: "ef þið ætlið að vera saman er nú lágmark að kynna hann fyrir fjölskyldunni"
Anna: "jájá"
Beggi: "hvar er hann núna?"
Anna: "í sófanum heima, sofandi"
Beggi: "æ gekkstu alveg frá greyinu"
Anna: "það var nú eitthvað líf eftir í honum þegar ég fór"
Mamma: "hvað ætlar þessi Djödd sér?
Anna: "Djúd"
Mamma: "Er þetta maður sem kemur til með að giftast þér og reynast börnunum þínum vel?"
Anna: "æ mamma hann er karlmaður, hann veit ekkert hvað hann vill"
Mamma: "og viltu þannig mann Anna mín?"
Anna: "það veit ég ekkert mamma, veit ekkert hvað ég vil heldur - sem er eðlilegt því miðað við þau netpróf sem ég hef tekið hugsa ég eins og karlmaður"
Mamma: "jesús kristur"
Anna: "ekki kalla mig þetta, þú veist hvað gerðist síðast þegar þetta spurðist út"
Mamma: "stundum skil ég þig ekki Anna mín"
Anna: "stundum er það líklega betra"