Mánudagur, 12. september 2005
Í gær komu börnin fyrr heim en ég reiknaði með.
Anna: "ekki trufla núna Doddi minn, mamma er að falsa myndir"
Doddi: "hvaða myndir?"
Anna: "af mér og Jude Law"
Doddi: "hver er það?"
Anna: "leikari sem mamma segir fólki að sé alltaf að hringja í sig"
Doddi: "af hverju gerirðu það?"
Anna: "af því mér finnst það absúrd"
Jóhanna: "af hverju finnst þér það absúrd?"
Anna: "af því að líkurnar á því eru.. ekki miklar"
Doddi: "hvað þýðir absúrd?"
Anna: "absúrd er eitthvað sem er svo óvenjulegt eða ólíklegt að það er fáránlegt og stundum eru hlutir svo fáránlegir að þeir verða hlægilegir"
Jóhanna: "hver er þetta í sófanum?"
Anna: "Jude Law"
Jóhanna: "er þetta Jude Law?
Anna: "já"
Jóhanna: "hvað er hann að gera hér?"
Anna: "hvíla sig"
Jóhanna: "mér finnst meira absúrd að hann sé í sófanum en að hann sé að hringja í þig"
Anna: "þú ættir þá að vera viðstödd þegar hann hringir í mig úr sófanum! Það er nú bara skerí"