Miðvikudagur, 28. september 2005
Í dag kom samstarfskona til mín og spurði "Er Doddi alveg hættur að koma hingað?"
Þetta gerðist um klukkan þrjú í dag. Ég var að átta mig á, fyrir sirkabát tíu mínútum síðan, að það sem hún meinti var hvort Doddi væri hættur að koma til mín í vinnuna eftir skóla og hann er hættur því, vegna þess að hann fékk loksins pláss í dag gæslunni.
Heilabúið á mér var ekki að kompjúta þessa spurningu þegar hún var spurð og mér fannst þetta svo absúrd að ég svaraði tregafull:
"já. Hann er hættur að koma. Hann fann nýja mömmu."
Það er gaman að geta þess að ég hef mikla fordóma gegn fólki sem er lengi að hugsa.