www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Ennþá á biðlista eftir daggæslu
Miðvikudagur, 07. september 2005

Doddi: Mamma, varst þú apadýr einhvertíma?
Anna: Nei, það var ég ekki.
Doddi: ef ég er ekki apadýr, af hverju er ég þá með feld? Hárin á löppunum og svona, þetta er feldur mamma.
Anna: hrmfp (hugsar til þess að líklega er hún mjög frumstætt apadýr miðað við allan "feldinn")
Anna: af hverju spyrðu hvort ég hafi verið apadýr?
Doddi: útaf því að ég hélt að þú hefðir verið til í gamla daga. (vó.. hversu gömul heldur hann að ég sé!) Mér finnst ótrúlega fyndið, í gamla daga var notað stundarglas fyrir klukku. Hvernig voru þá eiginlega vekjaraklukkur?
Anna: tjah.. hvað heldur þú að hafi verið notað?
Doddi: ég veit það ekki, hanarnir.. þeir bara öskra þegar sólin er að koma upp, en ekki þegar maður vill vakna. Var afi úlfur til í gamla daga? Svo ég geti spurt hann hvernig vekjaraklukkur voru?

[seinna, við afa Úlf]

Doddi: Afi úlfur, hvernig voru vekjaraklukkur í gamla daga.
Afi úlfur: þær voru rosalega stórar, með bjöllu
Doddi: varst þú allaf til?
Afi úlfur: já ég hef alltaf verið til, síðan ég man eftir mér
Doddi: og varstu þá apadýr?
Afi úlfur: já, svo breyttist ég.
Doddi: í úlf?
Afi úlfur: nei í mannapa


| anna | 12:39 |
comments

nú, er það ekki bara dýragarðurinn, þá...? colgate

Nr. 1 | posted by: hildigunnur | 7.09.2005 | 16:50:27 | [+] |

held það bara.. hehe

Nr. 2 | posted by: anna | 7.09.2005 | 17:47:22 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web