www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Dagur uppgötvana
Þriðjudagur, 27. september 2005

Fékk heimaverkefni í dag. Næstu tvær vikur á ég að kryfja fordómana mína. Ég hef nefnilega svoleiðis, eins og áður hefur komið fram.

Þegar ég fór að skoða málið betur blasir við að ég þarf að taka út restina af sumarfríinu mínu, ráða minnst tvo aðstoðarmenn og ritara ef ég á að komast yfir að kryfja svona mikið af fordómum á svona stuttum tíma. Best af öllu? Ég hef mesta fordóma gegn sjálfri mér.

Já! Og ég fattaði loksins af hverju ég er búin að vera svona restless og af hverju ég er búin að byggja upp svona mikið hatur á karlmönnum.

Við skulum samt alveg hafa fæturna á jörðinni, ég er ekki að segja að ég sé hætt að hata þá. Er að hugsa um að skipta yfir í að hafa fordóma gegn þeim. - Ef það er bætandi á þá fordóma sem ég hef fyrir. Á eftir að sjá hvort kemur betur út - á pappír.

Já! Og ég áttaði mig á því að ég elska mann. Alveg óvart auðvitað, ætlaði að vera löngu hætt þessu. Gengur þvert á nýupptekna stefnu mína sem er að hata karlmenn eingöngu. Líklega hefur einhverju slegið saman einhverstaðar.

Já! Ok ég fattaði þetta ekki sjálf, var bent á að ég er self destructive. Ég vissi það náttúrlega fyrir, en var í afneitun og svo snýst þetta ekki um að ég sé self destructive. Ég er hinsvegar með ofvirkt varnarkerfi sem drepur allt sem kemur of nálægt. Því miður setur það augljóslega mig alltaf in the kill zone.

Mér var líka bent á það að stundum þegar ég er self destructive verð ég merciless bitch. Verst þykir mér að ég hef ég bara ekki látið það bitna á rétta fólkinu.

Já! Ég áttaði mig líka á því að ég er ekkert einmana. Mér finnst bara gaman að halda að ég sé það! Ég á eftir að fatta af hverju.

Já! Ég fékk líka staðfestingu á... að ég er... absolutely fabulous!

Skál fyrir því!

Hvað? Héldu þið að ég ætlaði í fordómamálið edrú?

Get real!


| anna | 22:54 |
comments

Cheers happy

Nr. 1 | posted by: Þór | 27.09.2005 | 23:42:37 | [+] |

Ég hef orðið fyrir smá vonbrigðum undanfarið í kjölfarið á þessari karlamannahatursumræðu þinni. Ég hélt í einfeldni minni að miðaldra karlmenn væru undanþegnir hjá þér?

Nr. 2 | posted by: igor | 28.09.2005 | 20:20:29 | [+] |

Hvenær hef ég sagt að ég hati miðaldra karlmenn?

Aldrei.

Karlmenn og miðaldra karlmenn eru ekki það sama. Miðaldra karlmenn eru orðnir fyrirheitna landið. Menn með þroska og ekki hræddir við að nota hann.

Ég hef bara svo mikla fordóma gegn konum sem taka saman við sér miklu eldri menn. Að hringja í Jack er mín leið að takast á við þessa fordóma. Var svo að spá í að bíða bara eftir að eitthvað af þessu liði vaxi úr grasi. Finnst þér það ekki soldið sniðugt?

Nr. 3 | posted by: anna | 28.09.2005 | 20:48:48 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web