www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Bara að stimpla mig inn
Fimmtudagur, 08. september 2005

Ég er með of mörg login og of mörg lykilorð, en það kemur þessu bloggi ekkert við.

Nú situr Doddi hjá mér á skrifstofunni að læra heima fyrir vikuna. Hann hummar death star theme-ið á meðan. Viðeigandi.

Þetta er tóm snilld, þessi bið eftir daggæslu. Ég hef aldrei áður haft óbeint leyfi vinnuveitanda fyrir að sinna barninu mínu á vinnutíma. Vissulega þarf ég stundum að smella fingri og gefa honum illt auga (Dodda) svo að hann þegi á meðan ég er í símanum, ég hef hinsvegar aldrei gefið mér jafn góðan tíma í að sinna heimalærdóm drengsins þar sem við erum bæði svo þreytt á kvöldin að við nennum engu þegar við erum búin að borða - a.m.k. nennum við engu á sama tíma.

Ég hef ákveðið að þegar hann kemst að í daggæslunni, ef það verður einhvertíma, þá verði hann bara í daggæslu í þrjá daga í viku. Hina tvo kemur hann í vinnuna til mín að læra.

Þetta var hinsvegar ekki það sem ég vildi skrifað hafa og það sem liggur mér á hjarta. Nei, það sem liggur mér á hjarta er Dr. Tobias Fünke.

Ég var að horfa á nítjánda þátt af Arrested Development í gær, þegar í einu atriðinu.. Tobias varð þess valdandi að ég missti mig gjörsamlega í hláturskasti þannig að ég hreinlega hélt um magann og þakkaði guði fyrir a) að sætu portúgalarnir voru ekki á glugganum hjá mér og b) að ég var búin að draga fyrir og c) að nágrannar mínir vita að ég bý með börnunum mínum d) að nágrannar mínir vissu ekki að ég var ein heima í gærkvöldi.

David Cross er ótrúlegur senuþjófur.

Þar fyrir utan er hreinlega ekkert að frétta. Engir uppdiktaðir elskhugar sem ég nenni að finna upp, en það gæti líka verið vegna þess að ég er búin að finna einn alvöru.. hehe


Tobias: You know, Lindsay, as a therapist, I have advised a number of couples to explore an open relationship where the couple remains emotionally committed, but free to explore extra-marital encounters.

Lindsay: Well, did it work for those people?

Tobias: No, it never does. I mean, these people somehow delude themselves into thinking it might, but...but it might work for us.


| anna | 15:52 |
comments
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web